Nei, þetta er bara einhver háæruverðugur lygalaupur.
Yfirleitt þegar menn eru geðklofar, viðurkennir einn persónuleiki ekki annan persónuleikan í sér
frábærar upplýsingar, takk fyrir það, ég læt þig vita ef ég verð geðklofi.
Ég gerði mitt besta til að koma þér burt úr samkvæminu Hákon en Ruglubulli taldi þig fullkomlega ábyrgan gerða þinna.
Hins vegar sá ég til þess að Barbie komst ósködduð frá þessu teiti til síns heima.
Þakkir fyrir það Herbjörn, mér var alveg hætt að lítast á blikuna undir lokin. Ljómar upp og brosir sínu blíðasta til Herbjarnar Þú ert sannarlega vinur í vefvafri. Starir þegjandi út í loftið og hugleiðir hvort vefvafri sé of líkt vefari Mikill Hákon, þú skalt strax gifta þig aftur ef að fjölkvæni er ekki leyfilegt í Baggalútíu. Þá ertu laus allra mála, ja eða fangi ÖLÍS.
Ekkert að þakka Barbie. Þó ekki væri nema fyrir sakir embættis míns, verð ég að ganga á undan öðrum með góðu fordæmi.
Vafra: Sveima lóna aftur og fram. Barbie viltu láta ÖLÍS fjarlægja Konna
Ég hef aldrei skilið hvaða ítök hann Klettur telur sig hafa í ÖLÍS
Auk þess er ég byrjaður að sjá kostina við það að vera kvæntur Frelsishetjunni. Alls ekki svo slæmt.
Engan veginn! Mér skilst hins vegar á póstum hans undanfarið að hann sé ekki of sæll með ráðahaginn.
Konni beibí er ósnertanlegur. Sem yfirmaður yfirmanns ÖLÍS ábyrgist ég að hann muni aldrei þurfa að hafa áhyggjur af þeirri ógnvænlegu stofnun.
Annað en þú klettur.
Glottir við tönn
Það er nú gott Hákon minn. Gleðst yfir ástum samlyndra hjóna
Þessar hótanir hafa ekki meiri áhrif á mig en hrím á kletti
Hendir Kletti fram af Kletti, afþvíbara.
vaknar úr drykkjudái Hvar er ég hvað gerðist og hvað er ég að gera með þessa hárkollu, í brúðarkjól og sminkið útum allt???
Það er nú gott Hákon minn. Gleðst yfir ástum samlyndra hjóna
Neinei, það er engin ást í spilinu, eins og ég sagði, þá er þetta bara hagkvæmnishjónaband.
Það er nú gott Hákon minn. Gleðst yfir ástum samlyndra hjóna
Neinei, það er engin ást í spilinu, eins og ég sagði, þá er þetta bara hagkvæmnishjónaband.
HVAÐ!??
en ég elska þig samt skilyrðislaust.