Magnanafræðin er stórkostleg og stórmerkileg og þá sérstaklega sem fræði og rannsóknargrein. Nú nýverið var byrt skýrsla þar sem sagt er frá tilraun er gerð var á hóp af sjúkum börnum. Hópnum var skipt í tvennt, annar fékk með ferð en hinn ekki. Meðferðin fólst í því að einhver óskilgetinn hópur hugsaði til þessa afmarkaða hóps af börnum en báðir hóparnir nutu eðllilegrar læknismeðferðar. Sá hópurinn er naut tilhugsunar sýndi fyrr og betur lækningu við sýnum meinum. Það er merkilegt atvik að fá þetta birt og það skuli unnið af vísindamönnum sýnir aðeins að brestur er kominn í þagnarmúrinn gagnvart þessum hugrænu málum og er það vel.
Ég komst ekki til að fjalla um Nýalinn án þess að geta fyrst þessa máls. Mögnun skiptir lífið afar miklu máli. Lífið gefst upp án mögnunar og fyrir utan þessarar stuttu fréttar hér á undan, eru til fjölmargar rannsóknir víða um heim á þessum nótum. Mögnun er orð, hugtak yfir þá athöfn að lífvera hleðst af lífmagni, hún magnast. Það er að segja, hún hleðst upp af líforku og veður mögnuð. Ekki ólíkt rafhleðslu á á rafgeymir.Bætt verður við þetta á morgunn.
Þetta er magnað.
Á þetta eitthvað skylt við það sem kallað er (að mig minnir) Tmm hugleiðsla? Einhvern tímann las ég um 'tilraun' sem tmm hugleiðsluhópur framkvæmdi og töldu þeir sig hafa hækkað verð á hlutabréfamarkaði með hugleiðslu einhverri. Sú tilraun var að vísu vísindalega ótraust.
The Matrix!? ???
Hmmm? klórar sér í höfðinu og aðeins á bakinu eins og hann nær
Hérna vamban, notaðu klóruna mína réttir honum sérsmíðaða klóru með kóbaltbættum ákavítistappa á endanum
Drulluáhugaverð drulla.
Þetta útskýrir afhverju ég hef aldrei orðið veikur. Ég hugsa svo vel til mín.
Gaman væri að sjá p-gildi, student´s T-test, RR og OR, raunmun í prósentum og hlutfallslegan - í stuttu máli heimildir takk. Já og að sjálfsögðu fjárhagsleg tengsl stuðningsaðila ef einhver eru. Annars eru hlýjar hugsanir af hinu góða.
P-gildi t-dreifingarinnar hlýtur að vera rétt. Annars er samhengi kosmóssins í ólagi. Við skulum bara vona að að metlarnir séu ekki bjagaðir.
Ég var allt í einu að fatta að alheimurinn er í raun íhvolf spegilmynd af Eyþóri Arnalds... Ég ætti kannski að fara að sofa.
klórar sér í höfðinu og labbar út
klórar sér í höfðinu og labbar út
Haha, of djúpt fyrir þig
klórar sér í höfðinu og labbar út
Haha, of djúpt fyrir þig
Á ég að nota hann allann?
eeee heilan sko.... lítur flóttalega í kringum sig