Eftir að Vladimir veitti mér aðgang að kóbaltnámunum nýverið hef ég verið að rannsaka hvort ekki megi nýta kóbalt til að bæta bæði skonsur og hárilmefni. Þar sem rannsóknir mínar eru ekki styrktar af ríkinu (og því enga Færeyinga að fá til að gera tilraunir á) hef ég þurft að nota sjálfan mig sem tilraunadýr. Mig langar því að spurja hvort vitað sé um einhverjar auka- eða hliðarverkanir tengdar neyslu kóbalts (fyrir utan að verða blár)? Enginn efast þó um krafta, hollustu og heilunarmátt kóbalts.
Ég sé ekki betur en að þú sért að verða ofvirkari og ofvirkari með hverri skonsu sem líður.
Fór Glúmur ekki einu sinni í gegnum svipað ferli, þá við þróun Kóbalt-kóla? Þú gætir kannski leitað ráða hjá honum.
Aukaverkanir? Þær einu sem ég hef tekið eftir eru þær að maður breytist í kyntákn eftir að hafa innbyrt mjög mikið af Kóbalt-321.
Það er þó frekar fyndin aukaverkun fyrir þær sakir að ef drukkin er ekki meira en ein matarskeið af þessu efni þá breytist maður í kynköldung í rúma tvo klukkutíma.
Mjög hentugt fyrir nefndarfundi...
Bætir þremur matarskeiðum af kóbalt-321 ofan í flösku með græna hananum
Lifnar við í gömlum glæðum
Gæti verið að öfgafengin framkvæmdagleði (workforcum maximalis extremis) sé hliðar- og/eða aukaverkun kóbaltsnotkunar? Nú er ég að nota mikið af Kóbalt - 101?
Hvað fær þig til halda það?
Tekur hnefafylli af kóbaltdufti, skellir á borðið og mótar í langar línur með kreditkorti og sýgur ræmurnar allar upp með gullslegnu röri.
Eins og áður hefur komið fram þá fer það mér illa að færa rök fyrir máli mínu. Því get ég ekki svarað þessari spurningu. rembist við að snusa upp leyfarnar af kóbaltinu eftir Hakuchi
Fór Glúmur ekki einu sinni í gegnum svipað ferli, þá við þróun Kóbalt-kóla? Þú gætir kannski leitað ráða hjá honum.
Rétt er það, eftirfarandi er holl lesning fyrir alla kóbaltunnendur:
Nostalgía
Fór Glúmur ekki einu sinni í gegnum svipað ferli, þá við þróun Kóbalt-kóla? Þú gætir kannski leitað ráða hjá honum.
Rétt er það, eftirfarandi er holl lesning fyrir alla kóbaltunnendur:
Ja, grunaði ekki gvend.
Þessi Gvendur er víðförull
Þú ættir að þekkja hann, þetta er frændi okkar.
Er það þessi sem er alltaf með lak yfir höfðinu?