Ég vil fá aðstöðu til þess að kjöldraga fólk á nokkrum af skipunum. Ég get borgað fyrir með gulltönnum og fallega lökkuðum hauskúpum.
Mig hefur alltaf langað að verða skipstjóri. Má ég það?
Ertu viss um að þú sért nógu mikill drykkjumaður til að geta verið skipstjóri? Þú veist að þú munt þurfa að vera pöddufullur á hverjum einasta túr.
Sérstaklega ef þú ætlar að vera í olíuflutningum eða slíku.
Ég skal vera fullur allan tíman. Er ekki öruggt að hveðið er á um aðgan að áfengi í kjarasamningum?
Nei, þetta er meira svona hefð sem menn eru látnir fjármagna sjálfir en fá þó borgað meira undir borðið fyrir vikið.
Nei, þetta er meira svona hefð sem menn eru látnir fjármagna sjálfir en fá þó borgað meira undir borðið fyrir vikið.
Þú ert alltaf sama nánösin
Uss, ég kom hvergi að þessum samningum. Þetta var allt ákveðið fyrir mína tíð.
Hvernig væri svo að taka upp þann gamla og góða sið að "sjanghæja" áhafnarmeðlimi. Þá yrði Herbjörn fyrirtaks léttadrengur á HMS Baggalút og Feministi gæti orðið aðstoðarkokkur og yfir skrælari á HMS Drottning Júlía. Klettur er vitagagnlaus þó mætti nota hann í kjölfestu eða í beitu. fer og pantar matrósar búninga á Leiu prinsessu og Sirrý
skipar nokkrum Færeyingum að byrja að smíða skipið HMS Keisarinn
Skipar Fríseyingum að hefja tafarlaust smíði flugmóðuskipsins HMS NYKUR. En það mun geta borið 17.000 fljúgandi sauði Dr. Zoidbergs.
Lætur fyrrum íbúa eyjarinnar Mön útbúa fullkomnasta skemmtiferðaskip heims, HMS Ruglubulli, á kostnað svissnesks bankareikning Mönverja
Lætur Hjaltlendinga hefja smíði á fyrsta neðansjávarskemmtiferðaskipi í heimi, HMS Vladimir, er jafnframt getur verið venjulegt skemmtiferðaskip þegar það er ofansjávar
Lætur "þegna" smíða fyrsta utangeimsskemmtiferðaskip í heimi og kallar það HMS Hilmar
Skipar Færeyingunum í eldhúsi hirðarinnar að smíða fljúgandi skonsu
Ég vil starfa sem skæruskipstjóri og stjórna stærsta Zeppelin sögunnar og auðvitað verður hann með hulinbúnaði. Ég hef nefnilega frábæra hugmynd um að droppa öröpum hingað og þangað um heiminn til að eyðileggja efnahagskerfi þeirra landa sem okkur langar í.
Þetta skipafélag mun að sjálfsögðu nota olíu frá Baggalútíska Petrol, sem er einstaklega fagurblátt á lit, enda kóbaltbætt...
Það er ánægjulegt að vita, að Baggalútur er ekki einvörðungis með augun á grasigrónum görðum Færeyja, ávallt með hugann við landvinninga.
Nú ber við nýjan tón! Stekkur hæð sína Öll flotholt á heimsins höfum munu hristast í sundur við þá ógnar tilfinningu sem mun stafa af óvinnandi flota Baggalútíu!!!!! Hlær eins og geðsjúklingur
Annars þá væri ég til í að taka að mér umsjá smábátamála, sbr. tryllur, árabáta, hákarlaveiðiskip og forn fley og fleiri flotholt.