ég, ég, ég, ég!
Ókei.
Þá er þetta allt saman komið. Við skulum öll sinna okkar vinnu af kostgæfni.
Fyrir ykkur hin, gerið það sem þið viljið...
Fæ ég að verða Geimsendiherra??
Það er nú kannski full-djúpt í árina tekið að gera þig sendiherra yfir öllum geimnum, þú mátt kannski vera yfir delta-fjórðungnum.
Það er nú kannski full-djúpt í árina tekið að gera þig sendiherra yfir öllum geimnum, þú mátt kannski vera yfir delta-fjórðungnum.
Gettu hver vaskar upp í kvöld.
þjónustuliðið?
Fæ ég að verða Geimsendiherra?
Það er nú of mikið á eina frelsishetju lagt að þurfa að sendiherrast yfir svæði sem nær yfir 14 ljósára radíus í kringum jörðina, í það minnsta.
Væri ekki ráð að vaska upp fyrst?
Alls ekki. ég verð nú bara sendiherra á okkar vetrarbraut til að byrja með. Þangað til að við erum búin að kortleggja restina af þessum óendalega geimi. Sem ég geri ráð fyrir að hafist eftir um það bil á næsta föstudag.
hendir leirtauinu í ruglubulla
Kemst undan leirtauinu
Ef þú leiðir hersveitir Björns Bjarnasonar til sigurs yfir öllum íbúum vetrarbrautarinnar öðrum en jarðarbúum, þá sé ég ekki af hverju þú ættir ekki að fá að reisa þér eins og eitt sendiráð á einhverri fjarlægri plánetu...
Því í dauðanum ættum við þegnar Baggalútíu að fara leiða tindáta Björns Bjarnarsonar til sigurs yfir einhverju. Við höfum Mannapana, genabreyttu lundana og hina skelfilegu Sauði Dr. Zoidbergs og ef því er að skipta hvar kemur Björn B. inn í myndinna þegar land- og geimvinningar Baggalútíu eru annarsvegar?
Með sumarkveðju,

Þetta er í raun góð spurning. Mér fannst bara skemmtilegra að nota hersveitir Bjössa, og þá sérstaklega af þeirri ástæðu að þeir kosta skattborgaranna mun meira heldur en hitt. Auk þess var greitt fyrir þá, maður má nú ekki láta þá fara til spillis?

Já svona eins og Legion Entrangere það líst mér vel. Bara gæta þess að ekkert af heiðrinum falli á BB.
Ég vil fá að vera sendiherra í hinum víddunum. Ég er hvort eð er sá eini sem kemst þangað.
horfir djöfullega á Vladimir
Jæja, þá hef ég lokið við að boða fagnaðarerindi Baggalútíu til allrar N-Ameríku. Nægir að segja ,,Lifi sannleikurinn" við innfædda og þá lúta þeir öllum okkar óskum. Njótið heil. Er þetta ekki annars tilefni til að halda veislu?? Allir velkomnir í sendiherrabústað minn á Mauii. Slær upp veislu á ströndinni með varðeld, grilluðum svínalundum, húla húla pilsum, ákavíti og risastórum borða. LIFI SANNLEIKURINN
Vantar eigi sendiherra Páskaeyja? Ef hann vantar, þá býð ég mig fram til starfsins.
Finnur loks veisluna eftir nær 3 klst. leit
Lifi sannleikurinn !
Skál ! Sýpur á kóbaltblönduðu H2O (!)
Laumupúkast í eftirpartí árshátíðar