Til eru margar leiðir til að gefa í skyn gáfnaskort einstaklinga, mis áberandi þó og finnst mér þér fínlegu allra skemmtilegastar. Ég er þó tiltölulega fáfróður um slíkar setningar og þætti mér gaman að heyra tillögur ykkar um hvernig má gefa til kynna að menn séu ekki sérlega viti bornir án þess þó að notast við gróft orðalag.
Hann stígur ekki beint í vitið.
Fáir einstaklingar búa yfir svo mörgum óvirkjuðum heilasellum
- og jafnframt svo fáum.
Hann er nefnilega ekki minna vitlaus en hann lítur út fyrir að vera.
Hann er alveg fíl gáfaður
- og jafn minnugur og Einstein.
Viðkomandi er augljóslega mikil mannvitsslétta.
Þó þú tækir þúsund hámenntaða einstaklinga þá get ég lofað þér að enginn myndi vera honum jafn að vitsmunum.
Hann ber vísdóm og fas sem minnir um margt á Helga Ingjaldsson.
Hann er mjög íþróttamannslega þenkjandi.
Þú ert ekki beittasti hnífurinn í hnífaskúffunni.
Þú ert enginn hálfviti, nei, þú ert helmingi gáfaðri en það...
sei sei já
Þú ert ekki eins vitlaus og við lítum út fyrir að vera.
leggur við hlustir og brosir Mikið er þetta fallegt lag sem þú ert að raula Konstantín.
Leggðu bara við hlustir Raular og blístrar til skiptis
Bara hættur með RÚV stefið eða heyrði ég eitthvað vitlaust hérna um daginn...
Uppáhaldsútvarpsstöðin hans/hennar er FM 957.
Eða ég held að uppáhaldsmyndin hans/hennar sé Weekend at Bernies.
Eða bara sannleikann: Hugurinn hvítur sem snær, hann er tómur frá höfði´oní tær.
Uppáhaldsútvarpsstöðin hans/hennar er FM 957.
Eða ég held að uppáhaldsmyndin hans/hennar sé Weekend at Bernies.
Eða bara sannleikann: Hugurinn hvítur sem snær, hann er tómur frá höfði´oní tær.
Eigið þér við mig?