Nykur, þú skilur ekki hvað ég er að segja. Ég vil að ítök ríkisins í kirkjunni haldist, en við borgum ekki neitt til þess að halda henni uppi. Sá peningur getur farið í eitthvað annað. potar fimmþúsund króna seðli að Nykri

Það er nákvæmlega það sem niðurstaða nefndarinnar er ítrekun á. Mikið var að einhver annar með viti tjáði sig um þetta mál.
Nykur, þú skilur ekki hvað ég er að segja. Ég vil að ítök ríkisins í kirkjunni haldist, en við borgum ekki neitt til þess að halda henni uppi. Sá peningur getur farið í eitthvað annað. potar fimmþúsund króna seðli að Nykri
Nú jæja, bara að við séum samstíga í þessu máli Hákon minn. tekur við fimmþúsundkallinum og kveikir sér í vindli með honum, lætur sem hann sjái ekki hneykslunarsvipinn á einstæðu mæðrunum í röðinni fyrir utan skrifstofu mæðrastyrksnefndar
Ég legg til að ríkisstjórnin geri út leitarflokk til að hafa uppi á þeim ráðherrum og embættismönnum, sem ekki hafa sést svo mánuðum skiptir.
Síðan verði kallaður saman ríkisráðsfundur til að jafna ágreining stjórnarmanna og þið verðið líka að reyna að tryggja að allir ráðherrar tali sama mál. Þetta er allt að fara úr böndum hjá ykkur.
En hvað er ég svo sem að hafa áhyggjur af þessari bannsettu ríkisstjórn?

Ágreining, sama má! Horfir með hneykslunarsvip á Herbjörn tekur svo um axlirnar á honum og segir þjóstafullt Okkur hér í Ríkisstjórn er alveg heimilt að vera með sjálfstæða hugsun, þetta er ekki eins og hjá ykkur andspyrnu tuskunum þar sem þegar ein beljan mígur þá fara hinar af stað!
Vel mælt, Nykur!
Takk takk háttvirtur fullmektugur keisari vor réttir Hákoni Cohiba vindil og logandi fimmþúsundkall Mér bara blöskrar svo þessar ómerkilegu aðfinnslur Herbjarnar og svo þykist hann ganga á vegum drottins, með þennan líka sorakjaft. Opnar flösku af þorláksmessuákavíti og hellir í tvö staup.
Fyrr má nú vera! Herbjörn, hagaðu þér eins og biskup, óbarinn eður ei! Sest með Nykri við laumupúkaborðið sem er alltaf umlukið ákveðinni dulúð, Kveikir sér í vindlinum með fimmþúsundkallinum, drekkur úr staupinu og skellir því á borðið