Hvaða málshátt fenguð þið? Ég fékk; Sá skal eigi friðinn brjóta, sem friðarins vill njóta. Aldrei heyrt hann áður...
Ég fékk ekki páskaegg.
Horfir sorgmæddur út um gluggann og reynir að gráta ekki.
Jésú dó fyrir syndir ykkar og þið getið ekki hundskast til að troða í ykkur páskaeggi fyrir hann!?
Páskaegg koma Jesú eigi mikið við.
Og sjá, er Jésu lét lífið á krossinum rifnaði musterið í tvennt or some, og jörðin skalf. Og það var páskaegg.
Þér gerist hér sekir um alvarlegan ritstuld með því að gleyma bæði gæsalöppum og að geta þess hvaðan texti þessi er (höfundur, útgefandi, heiti ritverks, staður, ártal, vefslóð ef við á o.s.frv.).
Matt. 4. kafli 5. vers. Og hérna "".
Páskaegg koma Jesú eigi mikið við.
Mikið rétt
það varð einhver ruglingur með páskaeggið mitt og það virðist sem ég hafi fengið eggið sem ætlað var Birni Bjarnasyni.
Málshátturinn var "Skynsamir skipta um skoðun, fíflin eigi"
það varð einhver ruglingur með páskaeggið mitt og það virðist sem ég hafi fengið eggið sem ætlað var Birni Bjarnasyni.
Málshátturinn var "Skynsamir skipta um skoðun, fíflin eigi"
Hann hefur nú e-ð verið að skipta um skoðanir, en verra þykir að þeir verða síður en svo skynsamari fyrir vikið. Annars var minn málsháttur einhvernveginn á þann veg að betra væri að efna en lofa.