Baggalútar hafa ætíð verið listfengið fólk. Listalýður veður hér uppi og landið er heimsþekkt fyrir ótrúlega menningarstarfsemi, sem oft er miðuð við mannshöfuð. Og er nokkur betri leið til þess að þurrka upp fé skattborgara en að halda eina allsherjar listahátíð? Allaveganna ekki ef miðað er við að hverri einustu krónu sem eytt er í listir skilar sér aldrei til baka.
Ég vil sjá gjörninga framkvæmda hérna í höfuðborginni. Því dýrari og fáránlegri sem þeir eru, því meira eykst hróður okkar erlendis. Upp með fjörið!
Kaupir stærsta gullflykki veraldar fyrir skattpeninga og makar það út í mannasaur. Segir að það tákni kapítalisma, stríð gegn hryðjuverkum og þjáningu íbúa þriðja heimsins. Gefur engar frekari útskýringar
byrjar að safna naflakuski í krukku
Ég vil í þessu sambandi benda á stórvirki Leibba Djazz á myndlistarsviðinu. Hann þyrfti helst að fá einhver listamannalaun, þó ekki væri nema sletta af Ákavíti
Opnar myndlistasýningu í Gallerí Gaumgæfni, sem samanstendur af myndum af nektarmyndum
Afhjúpar risastóran reðurskúlptúr gerðan af Smára Örlygssyni fyrir utan þinghúsið. Gosbrunnur gýs upp úr toppnum á styttunni og safnast saman í laug fyrir neðan. Því fékk verkið nafnið "Smáralindin"
Ég vil í þessu sambandi benda á stórvirki Leibba Djazz á myndlistarsviðinu. Hann þyrfti helst að fá einhver listamannalaun, þó ekki væri nema sletta af Ákavíti
Þú segir nokkuð, hvar er karlanginn? ég hef ekki séð hann síðan bara... í byrjun mánaðarins held ég.
Þetta var fínt partí þarna í kjallara ÖLÍS; verst hvað sumir eru lengi að vakna og jafna sig eftir það.
En þeir voru ekki í partíinu. Svo þeir eru þar ekki þessvegna
Hassið hefur auðsjáanlega, verið sterkt þar sem ofskynjanir voru svona miklar
djöfullinn sjálfur! afhverju var mér ekki boðið!? fer ofan í vasann sinn og finnur þar miða sem segir: "partý í kjallara ÖLÍS"
nú.... eða ekki..
lætur sig hverfa
djöfullinn sjálfur! afhverju var mér ekki boðið!? fer ofan í vasann sinn og finnur þar miða sem segir: "partý í kjallara ÖLÍS"
nú.... eða ekki..
lætur sig hverfa
Helvíti... ég var fastur í umferðaröngþveiti einmitt þegar þessi samkoma var... mæti næst.
Ah... ég kann eiginlega betur við gamla lúkkið...
Ég sé að Leibbi Djazz er mættur. Fær sér sopa af eimuðu messuvíni.
Horfir á Leibbi Djazz lokaðan í járnbúri.
Já, þar er ég sammála þér Ívar. Maður á aldrei að skipta um neitt nema konu.
Og er nokkur betri leið til þess að þurrka upp fé skattborgara en að halda eina allsherjar listahátíð?
O, það held ég nú! Röltir um bæinn og leggur betlaraskatt, fátækraskatt og meiriskatt á