— GESTAPÓ —
Kóngur og Drottning
» Gestapó   » Baggalútía
     1, 2, 3, 4  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 4/4/04 16:48

Ég veit hversu valdalaus ég er, en eftir spjall á öðrum stað hér á Gestapó, hafa Baggalútar sameinst um að krýna Hakuchi og Júlíu sem Kóng og Drottningu Baggalútíu. Ég hef því ákveðið að staðfesta þann vilja hér.

Fyrir hönd Baggalútíu, lýsi ég ykkur Kóng og Drotningu Baggalútíu, þau lengi lifi...húrra, Húrra, Húrra....HÚRRA

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 4/4/04 16:50

HÚRRA

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 4/4/04 16:51

‹Veifar hægri hendi hægt og virðulega›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 4/4/04 16:55

‹Brosir leiftrandi brosi til þegnanna og veifar; kyssir smábarn á kinnina.›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 4/4/04 17:58

Halló! Halló! Hvurnig í fjáranum getum við haft keisara, kóng og drottningu í einu og sama ríkinu? Er brostin á borgarastyrjöld, eða hvað?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 4/4/04 17:59

Það er einföld lausn á þessum vanda; við losum okkur við keisarans. Það eru hvort sem er eilífar deilur um hans skegg.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 4/4/04 18:05

Borgarastyrjöld, sumsé. Hann gæti náttlega losað sig við skeggið.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Það er ekki til sá kóngur eða drottning í heiminum sem hefur einhver raunveruleg völd. Það nægir bara að skima um í Evrópu til að sjá hvernig farið er með fólk sem ber slíka titla. Þau eru tilbeðin eins og þau væru að einhverju leyti öðruvísi en fólk í öðrum fjölskyldum en konungsfjölskyldunni. Þau eru álitin faðir eða móðir þjóðarinnar þrátt fyrir það að hafa engin alvöru völd, að ég tali ekki um þegar alvöru börnin þeirra eru dópistar og annað eins. Baggalútska konungsfjölskyldan yrði eins. Öll völd eru í höndum ríkisstjórnar, leidda af keisara og forsætisráðherra, en kóngurinn og drottningin verða svona andlit þjóðarinnar, foreldrar hennar og sálar-verndarar. Auk þess hafa þau nægan tíma til þess að opna verksmiðjur eða mæta í veislur sem enginn í ríkisstjórninni nennir að mæta í.

Ég hef ekkert á móti því að koma upp konungsfjölskyldu í Baggalútíu, það er ekki eins og okkur skorti skattpeninga til að eyða.
Svo þegar allt kemur til alls skiptir það engu máli, það vita það allir innangarðsmenn að nefndarmálaráðuneytið ræður öllu á bak við tjöldin.

Sir Bjargmundur Svarfdal frá Keppum KBE • Nefndarmálaráðherra og Utanríkismálaráðherra Baggalútíu • Stórriddari Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 4/4/04 19:21

Já. Reyndar hefur keisaraembætti ávallt verið sýndarembætti líka hér í baggalútíu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Já, raunar er það rétt, yðar hátign. Hákon mikli er bara svo mikil manneskja í mínum augum að ég á það til að gleyma því.

Sir Bjargmundur Svarfdal frá Keppum KBE • Nefndarmálaráðherra og Utanríkismálaráðherra Baggalútíu • Stórriddari Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 4/4/04 19:57

hvaða helvítis djöfulgangur er þetta eiginlega!? "losa okkur við keisarann"?!
Hvað í súrrandi súrkáli þykist þið eiginlega vera!? Ég ætti að senda ykkur í gapastokkinn! Hvar í dauðanum er Blástakkur?!
‹þrammar út í leit að Blástakki›

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/4/04 20:26

Vér leggjum til að bætt verði við keisaraynju fyrir Mikinn Hákon. Síðan væri eigi vitlaust að bæta við forsetaembætti líka og eru eflaust margir er áhuga hefðu á slíku embætti. Þar með er búið að koma upp fullkominni þrígreiningu ríksivaldsins í Baggalútíu:

(1) Kóngur/drottning
(2) Keisari/keisaraynja
(3) Forseti/forsetafrú eða Forseti/"forsetaherra"

‹Hugsar til þess að gaman væri að verða forseti Baggalútíu›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 4/4/04 20:30

já, þannig væri hægt að losa okkur við allan ágreining.

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 4/4/04 20:34

Jájá, þetta ætti allt saman að blessast í sátt og samlyndi.

Varðandi Blástakk þá er hann vel geymdur í kjöllurum Varnamálaráðuneytisins, svo virðist sem kóbaltkúturinn á öndunarkerfinu hafi klikkað eitthvað og orsakað persónuraskanir sem ekki eru æskilegar miðað við mann í hans stöðu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 4/4/04 20:35

allt í lagi, er eitthvað vitað um hvenær hann snýr aftur?

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 4/4/04 20:35

Ormlaug yrði fyrirtaks keisaraynja. Nú, eða þá það Klobbi.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/4/04 20:37

Vér héldum að Klobbi væri karlkyns þrátt fyrir kvenlegt útlit ??

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 4/4/04 20:38

Hef ekki hugmyndu um kynferði þess, en keisarinn myndi eflaust komast að því fljótlega.

     1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: