Listaverkið sem um ræðir er augljóslega af prótópönkpóstmódernískum toga en þó undir miklum áhrifum frá mínimalistískum absúrd-dadaisma. Ég sé sterk höfundareinkenni listamannsins Hugleiks sem hefur einmitt fetað þessar slóðir.
Inntak verksins lýsir greinilega firringu mannsins í síðkapítalísku hyperupplýsinganetsamfélaginu þar sem ofmötun sýndarveruleikaupplýsinga tærir niður samskiptaatferli einstaklingsins sem endar í safrænni félagslegri einangrun sökum sýndarveruleikafíknar og afneitun hins sanna utanaðliggjandi heims. Einangrunin og firringin kristallast í samskiptum kynjanna á myndinni en sniðmengi samskiptanna milli þeirra er greinilega ekki til staðar út af a) áðurnefndri firringu b) mismunandi kynbundinn reynsluheimur beggja aðila. Má segja að hlutbirting kvenpersónunnar sé í raun 'sýndarverufræðileg' því hún birtir upplifun karlmannsins á svarnæmi kvenpersónunnar.
Í verkinu felst hárbeittur ádeilutónn á siðferðislega afstæðishyggju síð-póstmódernismans sem brýst fram í absúrdísku mómenti myndarinnar og afbyggir þá sýn ungu kynslóðarinnar í dag af nýjum og björtum stafrænum víddum sem býður upp á ótakmarkaða möguleika. Eftir afbygginguna/afhjúpunina stendur eftir döpur sýn ringulreiðar stafrænnar ofmötunar undómsins sem hefur skilað sér brotinni sjálfsmynd hennar og þverrandi getu til að skilja á milli mannvænnar tilveru og sjálfstortímandi mannfyrirlitningu.
Sem sagt: Merkilegt, áræðið og beitt verk frá upprennandi stjörnu á sviði myndlistarinnar. Leibbi Djazz er listamaður sem er kominn til að vera.
Ég sé bara eitthvað rautt X á hvítum fleti. E.t.v vísun í upprisu X kynslóðarinnar í Sviss. Eða er þetta etv. kosningaauglýsing; "Kjósið Rauða krossinn". Hvað um það þá hefði ég gjarnan viljað sjá teiknimyndasögu Leibba.
Nei, þetta virðist vera einshverskonar pínulítil loftmynd af sjúkrahúsi Rauða krossins í Bagdad. Er þetta einhverskonar drápsleikur? Ef svo er þá hef ég ekki áhuga!
Viltu ekki gefa okkur sopa og kannski þá sjáum við sanna list
Líf þitt er greinilega þrungið spennu og dramatík. Það þarf hraustmenni til að takast á við svona sviftingar.
Já, þetta er allt annað og algjör snilld! Minnir skemmtilega á "Reykjavík Spelndour" gæjans úr Smásálinni í Tvíhöfða.
Hvaða erótík?
slær Hilmar létt á bossann
Leibbi, lumaru nokkuð á fleirri teiknimyndum? Þessar voru ansi skondnar.
Láttu mig vita ef þú ætlar útí þennan bransa. Ég skal svo sannarlega kaupa allt eftir þig.
http://leibbi-comix.blogspot.com
Hér ber að finna daglegar uppfærslur á teiknimyndasögum mínum.
Kv.
Leibbi Djazz