Ég er reiðubúinn að styrkja þig til biskups eftir að þú hefur lagt fram opinberan stuðning við kongungdóm okkar Júlíu á þræðinum þar sem tilkynnt er um okkar krýningu.
Ég hélt ég hefði verið búinn að lýsa yfir stuðningi við ykkur sem konungshjón en það sakar ekki að endurtaka það á umbeðnum þræði. Ég fer þangað núna og skrifa stuðningsyfirlýsingu.
Ég lýsi hér með yfir stuðningi við Herbjörn Hafralóns í embætti biskups.
Embættið yrði þó undir Kirkjumálaráðuneytinu undir forystu Glúms.
Í ljósi þess að umræddur aðili er (eins og er) í stjórnarandstöðu, tel ég að skilyrða verði hlutverk embættisins stranglega við trúarleg atriði og hafi biskupinn ekki heimild til að vella út úr sér glórulausum stjórnarandstöðuáróðri. Af þeim sökum getur embættið ekki talist vera æviráðið eins og flest æðstu störf baggalútíu.
Að öðru leyti tel ég að herbjörn hafi fulla getu til að geta ljáð embættinu þann syfjulega virðuleik sem biskupsembættið á skilið.
Þakka þér kærlega Hakuchi. Loksins virðist heiðarleg barátta mín bera ávöxt. Af því tilefni sleppi ég hefðbundinni undirskrift að þessu sinni.
Ljómar upp
Hugsar sér gott til glóðarinnar að daninn skuli fá embættið. Dreymir um að Herbjörn muni nú halda túlanum saman
Ég er samt á leiðinni úr þjóðkirkjunni...
[Hugsar ruglubulla þegjandi þörfina en ákveður að segja ekkert]
[Hugsar ruglubulla þegjandi þörfina en ákveður að segja ekkert]
Klípur Herbjörn í kinnarnar og skeggið þangað til hann fer að gráta og hleypur út
Ekki halda að þú sért meiri maður í þessu máli.
Svona nú ruglubulli minn, ekki stríða nýja biskupnum okkar.
Hvar er Vladimír, hann þarf að staðfesta þetta.
Auk þess vil ég fá samþykki Glúms auðvitað.
Herbjörn, er þetta ekki tylliástæða hjá þér til að upplifa einhverja nunnufantasíu...ef svo er þá styð ég þig innilega í þetta embætti.
Svona nú ruglubulli minn, ekki stríða nýja biskupnum okkar.
Hvar er Vladimír, hann þarf að staðfesta þetta.
Auk þess vil ég fá samþykki Glúms auðvitað.
Þarf svo ekki Mikill Hákon að staðfesta útnefninguna. Ég er nú víst ekki einn af hans bestu vinum en það má kannski tala hann til.
Herbjörn, er þetta ekki tylliástæða hjá þér til að upplifa einhverja nunnufantasíu...ef svo er þá styð ég þig innilega í þetta embætti.
Nunnukomplexar eru það ekki, svona nú Skabbi minn fáðu þér ákavítislögg hjá mér. Skál!
Nunnukomplexar eru það ekki, svona nú Skabbi minn fáðu þér ákavítislögg hjá mér. Skál!
Bíddu nú við. Herbjörn Hafralóns, bindindis-daninn mikli, farinn að drekka með stjórnarsinnum?
Hvert stefnir þessi veröld?
Bíddu nú við. Herbjörn Hafralóns, bindindis-daninn mikli, farinn að drekka með stjórnarsinnum?
Hvert stefnir þessi veröld?
Svona, svona, við Skabbi höfum oft skálað hér á Baggalúti og ég er alls ekki yfirlýstur bindindismaður. Svo veit ég ekki betur en að þingveislur séu bæði fyrir stjórn og stjórnarandstæðinga. Sama hlýtur að gilda í Baggalútíu.
Svona nú ruglubulli minn, ekki stríða nýja biskupnum okkar.
Hvar er Vladimír, hann þarf að staðfesta þetta.
Auk þess vil ég fá samþykki Glúms auðvitað.
Þarf svo ekki Mikill Hákon að staðfesta útnefninguna. Ég er nú víst ekki einn af hans bestu vinum en það má kannski tala hann til.
Hákon treystir dómgreind minni (sérstaklega eftir að ég sýndi honum myndirnar af honum og chiauaha hundunum í mexíkanska hóruhúsinu frá sumrinu '01).
Mér finnst þessi geðþóttabreyting vera mjög undarleg hjá þér, hafraflón. Eina stundina öskraru "Lifi Andspyrnan" með mólotov-kokteil í hönd, og þá næstu öskraru "Skál" við stjórnarsinna.
Annaðhvort ertu fljótur að skipta litum og því ótraustur meðlimur í klíkunni, eða þá að þú ert ekki allur þar sem þú ert séður...
Horfir illindislega á Herbjörn

Ég legg málið í dóm.
Hann tók við embættinu að gefnum skilyrðum, þannig að þetta er allt saman traust og klárt.
Vér höfum gert nokkrar breytingar á ráðherra- og embættismannalistanum í samræmi við umræður hér og í fleiri þráðum.