Öll helvítis gömlu ævintýrin endugerð sem teiknimyndir, kenna ungum börnum að stúlkur eigi helst að vera fallegar og góðar, þá öðlist þær hamingju og fái prinsinn að launum. Og að piltar eigi að vera hugdjarfir og fallegir til að teljast með. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Eftirtaldi fá sérstaka útnefningu sem efnilegir.
Stúlka sú sem sér um brúðkaupþáttinn á Skjá einum.
Valdís útvarpskona, alltaf.
Hemmi Gunn þegar hann fer á trúnó í viðtölum.
æi já.Ragnheiður með týnda fuglinn á öxlinni,...aargghh!! minnir mann á allar fréttatilkynningar um dýr í óskilum og alltaf er sjónvarpið búið að trakka undir tónlist með konungi kampavínstónlistarinnar, James Last, sem ber nafn með rentu, enda af síðustu sort...
Barry Manilow Bjakk !
Eitthvað er nú brosið á henni Júlíu Róberts orðið tvírætt á þessum föstudegi
Já finnst þér ekki? Ég brosi mínu blíðasta framan í heiminn, í þeirri von að heimurinn brosi á móti framan í mig.
Ég myndi brosa ef það kæmi ekki svo óttalega niður á kúlinu mínu.
Lyftir öðru munnvikinu upp og myndar sjarmerandi glott í staðinn
En ég fullvissa þig að ég brosi eins og alsælt afmælisbarn að innan.
Ég meina, tvírætt bros eða bara svona eins og einhver hafi verið að segja eitthvað fyndið eða yfirmaðurinn hafi óvænt gyrt niður um sig framan hana. Ég meina ef greina á svipinn þá er þetta svona óvæntur hlátur og kannski dulítið kvikindislegur...hmmm...
Þú ert greinilega staurblindur á mannleg svipbrigði Tinni minn.
Kannski hefur umgengnin um einfaldaða andlitsdrætti félaga þinna (Kolbeinn, Væla, Sk & Sk osfrv.) svipt þig þeim hæfileika að lesa í fólk.
Þetta innlegg er tilraun, í hvaða sæti lendi ég ef ég jafna innleggjafjölda Sverfils...Sverfill þú mátt stroka þetta út þegar tilraunin er búinn...
Klettur er væmnastur!