Albert Yggarz sést hér annað slagið, ber ekki mikið á honum þó...en Salvador virðist horfinn...
Ef minnið svíkur oss eigi er Albert Yggarz friðargæsluliði í "Umvandanir, ábendingar og tilmæli".
Friðargæsluliðar umræðuflokka eru eftirfarandi:
Almennt spjall: Vladimir Fuckov
Efst á baugi: Skabbi skrumari
Umvandanir, ábendingar, tilmæli: Albert Yggarz
Fyrirspurnir:
Ritstjórn Baggalúts
Nýall, stjarnvísi og kóbalt: Hakuchi
Kveðist á: Barbapabbi
Þýðingar, speki og orðsnilld: salvador
Sögur, gátur, leikir og dægradvöl: Frelsishetjan

Nú held ég að keisarinn verði ekki ánægður með þig Sverfill. Þú gleymir friðargæsluliðanum yfir Baggalútíu.
finnum nýjan friðargæsluliða!
Er það í okkar valdi? Eru þau embætti ekki veitt af Ritstjórninni?
hvur skrattinn Sverfill!? Hafraflónið hefur rétt fyrir sér.
En þú ert afsakaður sökum þess að þú hefur væntanlega klippt og límt úr þræð sem Enter stofnaði á sínum tíma. Þá var Baggalútía ekki komin til sögunnar.
finnum nýjan friðargæsluliða!
Er það í okkar valdi? Eru þau embætti ekki veitt af Ritstjórninni?
Jú og ég held að Spesi sé þar hæstráðandi.
hvur skrattinn Sverfill!? Hafraflónið hefur rétt fyrir sér.
En þú ert afsakaður sökum þess að þú hefur væntanlega klippt og límt úr þræð sem Enter stofnaði á sínum tíma. Þá var Baggalútía ekki komin til sögunnar.
Rétt er það...biðst innilega afsökunar, kæri vin.
Og ítreka umsókn mína um pláss í friðargæsluliðinu...
Við hinir friðargæsluliðarnir hljótum að hafa tilmælarétt.
Ég legg til að við sem erum friðargæsluliðar leggjum fram Bænaskjal til ritstjórnar. Sjálfur vil ég sjá Sverfil sem friðargæsluliða. Hann hefur sannað sig svo um munar síðustu misseri.
Væri ekki sanngjarnt að einhverjir úr Andspyrnunni fengju eina eða fleiri stöður friðargæsluliða?
Væri ekki sanngjarnt að einhverjir úr Andspyrnunni fengju eina eða fleiri stöður friðargæsluliða?
nei.
Ég vil Sverfil í friðargæsluliða!
Vér styðjum Sverfil í embætti friðargæsluliða ákveði ritstjórn Baggalúts að skipta um friðargæsluliða hér í "Sögur, gátur, leikir og dægradvöl" þar sem Frelsishetjan er núna friðargæsluliði. Hinsvegar er enn lengra síðan salvador sást en hann er friðargæsluliði í "Þýðingar, speki og orðsnilld". Það eru því fleiri en einn friðargæsluliði er eigi hafa sést lengi.
Hvað er annars orðið af Frelsishetjunni, það eru meira en tveir mánuðir síðan hann kom síðast með innlegg...ef ég réði einhverju myndi ég samþykkja bæði Sverfil og Herbjörn, mér sýnist vera um að ræða tvö sæti hvort eð er, einhvern í staðinn fyrir Frelsishetjuna og Salvador, þar sem það er frekar langt síðan þeir létu sjá sig (Salvador var hérna síðast á síðasta ári).
hvískrar að Skabba Daninn er í Andspyrnunni
Segir við keisarann Það er betra að hafa andspyrnuna ofanjarðar en neðanjarðar.