Dvergar eru himnasending. Ótrúlega þægileg kvikindi. kallar á dverginn sinn Sko, sjáið þið minn. hendir honum í vegginn Vúhúhúúú.. heilir 8m í fyrsta kasti. Jesss!
Ertu á móti dvergum? En á móti sól? Ég bara spur.
Nei, ég er ekki á móti dvergum sem slíkum en mér er illa við einstaka dverga. T.d. Ísólf Gylfa og aðra minni háttar Framsóknarmenn. Sólin er fín.
ég er ekkert á móti dvergum.finnst að allir ættu að eiga einn eða tvo.Fleygir einum af dvergunum sínum hátt upp í loft
Bíddu var ekki göfug Ríkistjórn Baggalútíu búin að friða dverga greyin?
Minn er of feitur til að kasta, en er fínn til að rúlla.
Hehe, já. rúllar sínum dverg inní eldhús Komdu með kókglas til baka helvískur.
Félagslega og pólitízkt rétt hugsandi:
Heitir það ekki að vera "hæðarheftur"?
Þar sem að svo margir eiga sér dverg, legg ég til að við höldum árlega dvergakastskeppni baggalúts. Auðvitað er ólíklegt að Hilmar vinni, en það gæti samt verið gaman. Ég er að hugsa um að byrja, er reyndar bara með lánsdverg af borgarbókasafninu, en hann ætti að duga. Tekur sér stöðu og tveggja metra tillhlaup. Kastar dvergnum hátt í 4 alnir. Jæja, þetta voru einar 3,86 alnir. Ekki slæmt
er að vinna í loftaflsmálum dverga minna.Er að smíða vængi svo þeir svífi betur
Vér krefjumst þess að hætt sé að henda skildmennum til og frá Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ertu ekki að meina "Vér krefjumst þess að hægt sé að henda skildmennum til og frá"