Hefur einhver séð þennan aumkunarverða óhroða á Popptíví sem nefnist 101 Reykjavík? Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem mér hefur orðið reglulega flökurt undan sjónvarpsefni og ég er ekki að grínast! Ég held að það sé einmitt svona efni sem fælir fólk frá því að fara á djammið og í raun fáránlegt að planta þessu á undan snilldarsjónvarpsefni eins og TV í höfði....hmmm...
70 Mínútur eru á dulmáli sem engin skilur nema ég.
Fer inn í koníakstofuna sína og nær sér í vindil
Nei! 70 mínútur eru hrein snilld miðað við þetta. Ég held að ég hafi aldrei orðið vitni að öðru eins andleysi og hugmyndasnauð eins og í 101 Reykjvík, en vera má að stjórnendur séu meðvitað að þróa þá tækni að láta áhorfandanum verða flökurt...
úffff, Sirrý. Nei, þarna fórstu alveg með það. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Já nú man ég hvaða þáttur þetta er...sá einn þátt um daginn og ældi blóði í 3 daga á eftir, horfi sko ekki á þetta aftur...
bölvar aumingjunum sem standa að þessu sorpi...
Heyrið mig. Þetta er nú bara farið að hljóma spennandi í ömurleik sínum.
er það verra en landsins snjallasti?
væri kannski hægt að blanda þessu saman í einn þátt til að lágmarka leiðindatíma í sjónvarpinu
t.d. landsins snjallasti í 101
eða 101 landsins snjöllustu
Ég get nú ekki séð ömurleikann í því að horfa á ungar snótir striplast um á sundfötum.
Nei, Landsins snjallasti er barasta fínasta skemmtun. 101 Reykjavík stenst engan samanburð í ömurleik. Þetta er sannur niðurgangur í klósetti íslensks sjónvarps...
Hef ekki séð þennan þátt.En mun bæta úr því og hafa slatta af róandi og viskí við hliðina á mér til að bjarga geðheilsu minni
Já, heimur versnandi fer Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Við verðum að stofna lúðrahljómsveit!?
Já, heimur versnandi fer Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Við verðum að stofna lúðrahljómsveit!?
ég kann á flest brass hljóðfæri og er með 3ðja stig á Euphonium...
er bara betri gítarleikari....
Ég kann að lemja minnimáttar.
Það er nú viss kúnst.
Pant fá að spila á túbu! Ég er alveg brill á það hljóðfæri.
flott, gott fólk..........leynast hér ýmsir hæfileikamenn, kemur skemmtilega á óvart.... er einhver hér sem kann á flautu, ég skil ef svo sé ekki, því hér er um mikið og flókið hljóðfæri að ræða!!! Starir þegjandi út í loftið