Melrakkasléttan fær mitt atkvæði með sérstakri áherzlu á Raufarhöfn.
Mér hefur alltaf þótt Kópavogurinn afar ljótur og sjálfur er ég íbúi þar. Hann er sneyddur fögrum byggingum og sögu, þá nema kannski helst kópavogsfundinum en hann nú ekkert sérlega mikið fagnaðarefni.
Grafarvogur. Ber nafn með rentu sem kirkjugarður hinna lifandi andlega dauðu.
Akranes er ljótasti staðurinn á jarðríki
Plebbi, þú er mamma mín
Sonur minn er engin hommi. Dúdderídabbadú....
Tekur „Bubbi - Strákarnir í borginni“ af fónum
Varstu að segja eitthvað Hákon?
gott að vita
Melrakkaslétta er glataðasti staður alheimsins samkvæmt gamalli frétt hérna á Lútnum. Og plebbin, hvurnig færðu út að keisari vor sé hommi?
Og Gravarvogur er ekkert það slæmur Hakuchi, þó svo að hann gæti vel orðið betri eftir að hann er kominn undir stjórn Baggalútíu.
Og plebbin, hvurnig færðu út að keisari vor sé hommi?
Fyrirgefiði ég gleymdi nokkrum lykilatriðum sem vantaði í póstin hér að ofan.
Já Kópavogur, voðalega asnalegur bær eitthvað. Enda eru engir almennilegir kommúnistar þarna eftir nornaveiðarnar miklu...(dó!!)
Sandgerði er ljótasti staður sem ég hef komið á. Ímynda mér að þannig liti veröldin út eftir kjarnorkustríð.
Og Gravarvogur er ekkert það slæmur Hakuchi, þó svo að hann gæti vel orðið betri eftir að hann er kominn undir stjórn Baggalútíu.
Mín reynsla af Grafarvogi er amk. skelfileg. Ég vann þarna nokkur sumur í byggingarvinnu, mér til mikillar hrellingar. Það eina sem hélt lífinu í mér á þeim tíma voru uppátæki og hegðan brjálaðra múrara. Skemmtilegir þessir múrarar.
Ég hef alltaf haft ákveðið samviskubit yfir að hafa tekið þátt í að byggja upp Grafarvog. Mér líður eins og ég hafi gerst samsekur um einhvern glæp.
Ég hefi nú ekki ferðast um hvern vog og hábungu Íslands en get þó fullyrt að ákaflega ljótur finnst mér Hrútafjörðurinn. Og ef hann er ekki beinlínis alljótur þá er hann í það minnsta sérstaklega óveðursæll. Sem yfirleitt vegur upp á móti einhverri fegurð. Þar sem fegurðin er jú hlutlæg einkunn hvers og eins. Alltaf verð ég jafn hissa á að fólk skuli búa þar, nú þegar af jarðnæðinu er nóg.
Húnaflóinn er eins og trekt sem safnar köldum norðanvindi. Hrútafjörðurinn er þrengra opið á trektinni og þangað fer allur vindur af Húnaflóa. Enda nöturlegur.