Nú er spjallborðið að komast í samt lag.
Innskráningarvandamál virðast úr sögunni, en ef þið lendið í vandræðum með að skrá ykkur út - eyðið þá 'cookies' úr vafranum ykkar.
Eins og ykkur er máske kunnugt þá á ég í fórum mínum LISTA, sem ég punkta á ýmislegt sem betur mætti fara. Ef þið viljið koma einhverju að á þann ágæta LISTA komið því þá á framfæri á þessum þræði.
Og ekkert helvítis bull, það verður strokað út og netnotkun ykkar í 14 ættliði fordæmd.
Ástarkveðjur, Enter.
Ef til vill mætti sýna höfund þráðar, líkt sýnt er hver svaraði síðast?
En annars er síðan stórglæsileg og virðist ekki þurfa neinar breytingar.
Það mætti kannski byrja að leggja ákveðið krossapróf fyrir notendur þegar þeir ætla sér að gerast notendur. Með því móti er hægt að forðast gelgjur.
Það er reyndar frábær hugmynd!
Síðan verða reglulega lögð skyndipróf fyrir alla notendur og þeim sem falla vísað af spjallinu!
Og verðlaun veitt fyrir góðan árangur - og mætingu að sjálfsögðu.
Þetta verður tekið fyrir á næsta ríkisráðsfundi.
Sums staðar er hægt að eyða innleggi, annars staðar ekki. Getið þig útbúið svæðið þannig að hægt sé að eyða misheppnuðum innleggjum alls staðar?
rís upp við fögnuð milljóna manna og skartar sínu besta forsetaveifi
Hva... Eruð þér eigi Landbúnaðarráðherra?
Ég er líka keisari!
Vér myndum vilja geta birt myndir í dagbók, pistlingum o.þ.h. á sama hátt og þegar um venjulegt innlegg er að ræða.
Hvernig nennirðu að vera að púkka þetta uppá þessa gesti endalaust? Það er alveg að drepast úr heimtufrekju þetta lið!
Ég segi það með þér Númi.
Af hverju er ekki hægt að hlýða á útvarp Baggalút hér á Baggalút?
Er það kannski hægt?
farið að setja þessi próf á áður en önnur innrásarbylgja frá Huga.is skellur á.
Ekki viljum við að jólaatvikið 1987 endurtaki sig.
Minnist þess dags með tárum
Væri ekki ráð að hafa "skilaboð" feitletruð ef maður á ólesin skilaboð í hólfi sínu?
Jú, Barbapabbi
hvaða bók þarf maður að lesa til þess að ná prófinu. Ég er nefninlega mjög ill lesfær og fékk einu sinni 32 villur í stafsetningu og var látinn í sérkennslu og er tregur
mér þætti mikill munur að geta notað [url] tagið í félagsritaskrifum
Drífum í þessum skyndiprófum, skrekkurinn er að fara með mann. Er búinn að byrgja mig upp af diet coke og prins póló. Verður prófað úr þýskum sögnum? Starir tómum augum út í loftið