Já, ég held að Breiðamerkurlón ásamt Ásbyrgi séu einstök náttúrufyrirbrigði sem eiga engann sinn líka í veröldinni. Hið síðarnefnda er talið hafa myndast við hóffar Sleipnis.
Annars er nú þessi vesturbæjarrembingur svolítið þreytandi. Sjálfur bý ég við einhverja rótgrónustu götu vesturbæjarins, en það breytir því ekki að það það fallegt við Geldingarnes, Korpúlfsstaði, Árbæinn og svo maður tali nú ekki um Seljahverfið. Mastrið við Vatnsenda breytir svæðinu í einskonar sett fyrir sci-fi kvikmynd....
Ef einhver staður er fallegri á Íslandi en Færeyjar, þá veit ég ekki hvaða staður það er
Fegurð er afstæð. Finnst fólki ekki yfirleitt fagurt þar sem því líður vel...
Fegurð er afstæð. Finnst fólki ekki yfirleitt fagurt þar sem því líður vel...
Þá er Baggalútur e.þ.s. www.baggalutur.is langfallegasti staður í öllum heimi og næst kæmi Baggalútía
Þá er Baggalútur e.þ.s. www.baggalutur.is langfallegasti staður í öllum heimi og næst kæmi Baggalútía
Heyr, heyr. Hér með er niðurstaða þessrar umræðu orðin ljós og rétt að láta umræðu þessari þar með lokið.
En þá er ósvarað hver er ljótasti staðurinn á Íslandi. Ég bý til þráð þar að lútandi.
Sjá neðar, ég fékk víst ekki möguleika á að eyða...
Melrakkaslétta, samkvæmt gamalli frétt hérna á Lútnum, er víst glataðasti staður í alheiminum og hefur verið það síðustu 12 ár.
Landsvæðið í kringum sumar bústaðinn hennar ömmu og Vindáshlíð eru fallegustu staðir á landinu!!!!
Samkvæmt könnun sem gerð var í vinnustaðapartíi í gærkvöldi hvar 90% voru kvenkyns, er andlitið á mér fallegasti staður í heimi. Þar af leiðandi á Íslandi.
Hvar í ósköpunum kemst maður í partý þar sem 90% eru kvenmenn? Ertu staddur í einhverri útópíu?
Hakuchi, þú hefur bara aldrei séð þér fært að koma í ríkisstjórnarpartý.
90% kennara eru konur. 8% eru tjellingar og 2% eru karlmenn.
Keflavík hlýtur að vera fallegasti staður í heimi, nema fleiri séu taldir með.