Það er til fólk sem heldur því fram að Ísland sé fallegt, en sú fullyrðing hefur að vísu aldrei verið sönnuð. Þó er til einn staður á Íslandi sem er fallegur en það er Reykjavík vestan Snorrabrautar. Allt hitt er ljótt.
Skil ekki hvernig Reykjavík eða nokkur partur af henni, getur á einhvern hátt talist fallegur.
Lifandi og skemmtilegur, dásamlegt útsýni og krár á öðru hverju horni. Betra en bölvað grjótið og hraunið.
Jú, þarna komstu með ljósan punkt: krárnar. Ljómar upp En það vegur vart upp alla ókostina þó dvölin hér verði betri með tilveru kránna.
Hinsvegar er landslag á Íslandi með því ljótara sem þekkist. Þunglyndislegt og lífvana.
Kópavogur er já, utan siðmenningar. Nokkuð til í því. Starir þegjandi út í loftið
Já, mig hefur lengi grunað að Ísland sé nú bara forljótt, andstætt því sem mér hefur verið sagt frá því ég byrjaði að skilja mælt mál. Grunsemdir mínar hafa vaknað upp úr því að hafa séð ótal margar myndir af öðrum löndum sem virðast vera mun fallegri.
Við erum alltaf að monta okkur af þessum hrikalegu fjöllum sem eru í rauninni bara þúfur miðað við t.d. fjöll á Nýja Sjálandi og Klettafjöllin. Ísland liggur eiginlega utan marka hins byggilega.
Nákvæmlega. Jafnvel Noregur tekur Ísland í vinstri horstíflaða nös hvað varðar fegurð.
En ef fólk fær kikk út úr póstapokkaliptýsku landslagi þá er Ísland ágætis valkostur, en fjarri því að skara fram úr hvað það varðar.
Víst er þó fagurt á Granda, og ekkert stenst Örfirisey snúning þegar kemur að fallegu sólarlagi, ekki einu sinni blóðrauð sólarupprás í Minsk.
Persónulega fynnst mér fallegt hér sem ég er núna, held ég sé á Íslandi Horfir í kringum sig en er samt ekki alveg viss.
Eigi er hér náttúrufegurð mikil enda vér staddir innandyra.
Það er til fólk sem heldur því fram að Ísland sé fallegt, en sú fullyrðing hefur að vísu aldrei verið sönnuð. Þó er til einn staður á Íslandi sem er fallegur en það er Reykjavík vestan Snorrabrautar. Allt hitt er ljótt.
Ég tek undir með málshefjanda, en vil þó ganga lengra og segja Reykjavík vestan Suðurgötu. Jafnast til dæmis nokkuð á við að ganga með stúlkunni sinni um steinum prýddan, skógi vaxinn Hólavallakirkjugarðinn um hábjarta sumarnótt í logni og fuglasöng?