Ég er orðinn sársvangur og er að spá í að fara að elda mér prótínríka og saðsama máltíð...
En þið? Hvað eruð þið að fara að gera???
Sofa (vonandi bráðum)
fara að sofa
Vakna. Að vísu á að heita að vér séum vaknaðir en vér erum eigi sannfærðir um að svo sé.
Fara með sprungið dekk á verkstæði.
Hvernig má það annars vera, að ég, vesöl kvenmanspísl, varð að skipta um dekk ein og hjálparlaus í grenjandi rigningu og roki? Eru engir séntilmenn lengur í borginni? Eru allir skátar dauðir? Hvar eru karlmenn þegar maður þarf á þeim að halda? Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér

Karlmenn eru orðnir jafnréttissinnar og þar af leiðandi er ekki við hæfi að hjálpa konum að skipta um dekk
Ég er ekkert að gera núna, en á eftir fer ég í vinnuna og held fyrirlestur..
Ég þarf að skjótast í bankann og biðja um hækkun á yfirdrættinum.
Ég þarf að skjótast í bankann og biðja um hækkun á yfirdrættinum.
Merkilegt! Ég var einmitt að biðja um hið sama og bíð í ofvæni eftir svari....
Er að skjótast í bankann með lambhúshettuna og haglarann til að taka út ifirdrátinn ikkar.
Ég er nú bara að fara að læra Ljómar upp
Síðan ætla ég að fara að gera byltingu.
Ég er að vinna og verð að því fram á kvöld...