Ég kynni fyrir ykkur nýjan kveðskap, svokallaðan Hákonarhátt.
1. regla
dæmi:
Hvílíkur kveðskapur er hér á ferð
Þvílíkur undursamlegur texti að gerð
Langar að rífa hann út úr samhengi
angar af fisk í rafmagnstengi
eins og þið sjáið, þá ríma fyrstu orðin og síðustu orðin í hverri línu
Núna er komið að ykkur að semja fleiri reglur fyrir Hákonarhátt og koma með dæmi að vísu kveðinni eftir þeim reglum sem settar hafa verið fram.
Gerið ykkar versta.
Hefur þú séð pabba minn
Refur slingur en samt hið besta skinn
Þann mæta mann er allt best getur
Hann ekkert skiptir þótt kominn sé vetur
biður til gunnars í krossinum um að þetta sé nú jafnt sannfæringarlaust eins og brosið hans
svo glaður, svo glaður
neinei, þú átt að búa til nýja reglu fyrir Hákonarhátt og koma með dæmi að ljóði sem er samið samkvæmt þeirri reglu og undangengnum.
2. regla í Hákonarhátt
Svokallaður "Innbakaður Hákonarháttur með sikksakkaðu ívafi"
Dæmi:
Vitlaus er hann Leibbi Djazz
Rass hann ber í stað fyrir haus
Kaus hann ei að vera hjass
Hvass að neðan og skrúfan laus
Jæja, kastið nú fram fleirum góðum
afhverju í ræfilsrotnandi ræstingakonu setti ég þennan þráð hingað?
Afþví að þú varst búinn að fá þér of mikið ákavíti. Tekur andköf Of mikið ákavíti, hvað var ég að hugsa!? Fær sér einn tvöfaldan
of lítið... birgðir mínar þverra fer á www.atvr.is og leitar að opnunartímum
Sjitt! það verður að hefja nætursölu á þessu!
Skabbi ætti að geta komið því í kring, hann var að eitthvað að væla yfir sölutölunum um daginn.
leiðbeinir Herkúles flugvélinni inn í bílastæðið á keisarahöllinni
búinn að byrgja mig upp fyrir helgina
Skynsamlegt. Fer að fordæmi Hákons
Ákavíti andskotans
Allir skola niður
Hlákastrýti Háskotans
Hallir úr byggður viður
hic
Skemmtilega litríkt ljóð þetta...
Takk