Eigi jöfnumust vér á við það er Hakuchi hér lýsir enda sérgreinin njósnastarfsemi, kóbaltmálefni og elipton.
Hún var svona hressilegri að mörgu leyti...
Já, meira ligeglað en samt karlmannleg.
Þér eruð ávalt sjentilmaður, kæri Vladimir, þrátt fyrir allt kóbalthjalið - eða kannski einmitt þess vegna?
Mætti benda ykkur, dama mín og herrar, á "The Haraldur Austmann School of Charms"?
Það segir sig náttúrulega sjálft af myndinni af þér að dæma að þú ert greinilega með kúlið og sjarmann á hreinu Haraldur minn.
Raular með sjálfum sér lagið Michael Caine með Madness.
Þú mættir gera enn betur, Haraldur, og kynna fyrir okkur (og þjóðinni allri) grunnþætti þess góða skóla. Margir hefðu gott af að tileinka sér þinn þokka og ná þinni færni í mannlegum samskiptum.
Námsskráin verður birt innan tíðar og svo vantar líka kennara við skólann. Ég er alveg fastur í "hnjáskjálfta 303."
Leitaðu ekki langt yfir skammt. Heiðursmennirnir hér á Baggalút ættu að geta tekið að sér eitt og eitt námskeið. Sjálf er ég fús að vera prófdómari, ef á þarf að halda.
Þér eruð ávalt sjentilmaður, kæri Vladimir, þrátt fyrir allt kóbalthjalið - eða kannski einmitt þess vegna?
Vér þökkum fögur orð Roðnar vandræðalega og fer síðan að undirbúa árás á Svíþjóð, setur kóbaltvopnabúnað og elipton í árásarstöðu
Þakka þér nú fyrir Júlía mín, vorpróf hefjast í apríl og þú verður látin vita.
Klukkan 16:04 var svona góðmennt inná Baggalútíu;
Dr Zoidberg
Haraldur Austmann
Hilmar Harðjaxl
Ívar Sívertsen
Leibbi Djazz
Aha Doktorinn bara efstur á lista Gefur frá sér vellíðunarstunu
Já, lista yfir aumingja! Hahaha!Hættir að hlæja þegar hann sér að hann er sjálfur á listanum
Klukkan 20:14 er svona góðmennt. .
Leibbi Djazz
Númi
sAx