— GESTAPÓ —
Góðmennt
» Gestapó   » Almennt spjall
        1, 2, 3, 4, 5  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 13/3/04 16:32

Hún var svona hressilegri að mörgu leyti...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 13/3/04 16:33

Eigi jöfnumust vér á við það er Hakuchi hér lýsir enda sérgreinin njósnastarfsemi, kóbaltmálefni og elipton.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 13/3/04 16:33

Sverfill Bergmann mælti:

Hún var svona hressilegri að mörgu leyti...

Já, meira ligeglað en samt karlmannleg.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 13/3/04 16:34

Já, þessi er kannski full harðneskjuleg...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 13/3/04 16:34

Þér eruð ávalt sjentilmaður, kæri Vladimir, þrátt fyrir allt kóbalthjalið - eða kannski einmitt þess vegna?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 13/3/04 16:36

Mætti benda ykkur, dama mín og herrar, á "The Haraldur Austmann School of Charms"?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 13/3/04 16:38

Það segir sig náttúrulega sjálft af myndinni af þér að dæma að þú ert greinilega með kúlið og sjarmann á hreinu Haraldur minn.

‹Raular með sjálfum sér lagið Michael Caine með Madness.›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 13/3/04 16:38

Þú mættir gera enn betur, Haraldur, og kynna fyrir okkur (og þjóðinni allri) grunnþætti þess góða skóla. Margir hefðu gott af að tileinka sér þinn þokka og ná þinni færni í mannlegum samskiptum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 13/3/04 16:41

Námsskráin verður birt innan tíðar og svo vantar líka kennara við skólann. Ég er alveg fastur í "hnjáskjálfta 303."

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 13/3/04 16:48

Leitaðu ekki langt yfir skammt. Heiðursmennirnir hér á Baggalút ættu að geta tekið að sér eitt og eitt námskeið. Sjálf er ég fús að vera prófdómari, ef á þarf að halda.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 13/3/04 16:49

Júlía mælti:

Þér eruð ávalt sjentilmaður, kæri Vladimir, þrátt fyrir allt kóbalthjalið - eða kannski einmitt þess vegna?

Vér þökkum fögur orð ‹Roðnar vandræðalega og fer síðan að undirbúa árás á Svíþjóð, setur kóbaltvopnabúnað og elipton í árásarstöðu›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 13/3/04 16:50

Þakka þér nú fyrir Júlía mín, vorpróf hefjast í apríl og þú verður látin vita.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 13/3/04 16:50

"Harðneskjulegt yfirbragð mjúkra manna á 21. öldinni"

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 24/3/04 16:09

Klukkan 16:04 var svona góðmennt inná Baggalútíu;

Dr Zoidberg
Haraldur Austmann
Hilmar Harðjaxl
Ívar Sívertsen
Leibbi Djazz

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hilmar Harðjaxl 24/3/04 16:12

Fínasti listi...

Það er ekkert sem getur ekki stöðvað mig!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dr Zoidberg 24/3/04 16:14

Aha Doktorinn bara efstur á lista ‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hilmar Harðjaxl 24/3/04 16:15

Já, lista yfir aumingja! Hahaha!‹Hættir að hlæja þegar hann sér að hann er sjálfur á listanum›

Það er ekkert sem getur ekki stöðvað mig!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 24/3/04 20:14

Klukkan 20:14 er svona góðmennt. .

Leibbi Djazz
Númi
sAx

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
LOKAÐ
        1, 2, 3, 4, 5  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: