Verði þér að góðu.
Mundu að til þess að vera ásættanlegur notandi þessa spjallborðs þarftu að hafa amk. 120 í greindarvísitölu, vera yfir tvítugu og vera algerlega búinn að drepa í þér alla gelgju í þér.
Með því að sleppa stórum staf í byrjun setningar gefurðu í skyn að þú sért ekki með greindarvísitölu yfir 120 og alls ekki laus við gelgjuskap. Hvað þá yfir tvítugt.
Aflífum þrjótinn.
Hlunkur sunki til heljar niður, hvar er tjara, hvar er fiður!?!
Nýr saman höndum í áfergju, en ákveður síðan að doka við
Verði þér að góðu.
Mundu að til þess að vera ásættanlegur notandi þessa spjallborðs þarftu að hafa amk. 120 í greindarvísitölu, vera yfir tvítugu og vera algerlega búinn að drepa í þér alla gelgju í þér.
Sem fulltrúi hins sísmækkandi samfélags á Baggalút sem samanstendur einvörðungu af þrettán ára aðdáendum Teen-Angst bandsins Slipknot vil ég mótmæla harðlega þessari fullyrðingu þinni Hakuchi, og biðja þig um að vera ekki að etja hér til múgæsings.
Strunsar út og skellir á eftir sér. Smellir síðan slagaranum ,,Spit it Out" með Slipknot á fóninn, yrkir ljóð sem ríma ekki og málar myndir af dauðum fuglum millum þess sem hann naglalakkar sjálfan sig með svörtu naglalakki
Það er brýn þörf fyrir samtök nýbúa hérna.
Eða hitt og heldur.
Farðu heim til þín, ekki velkominn hér. Sérstaklega þar sem þú stofnar nýjan þráð tileinkuðum komu þinni hingað. Sveiðér!
Nei andskotinn hafi það - þið megið ekki styggja lömbin!
Í húsi Baggalúts eru margar vistarverur.
Hér ætti allt gott fólk að rúmast. Nema gelgjur, þær eru einfaldlega ekki komnar á það stig að þær geti tjáð sig á vitrænan hátt.
Já - ég læt þetta í ykkar hendur, ég lít hér bara við annað slagið náttúrulega, þið þurfið að dúsa hér daginn út og inn greyin.
Ha!? Hvenær verður farið? ?#8
Er enginn hérna?
Jillar sig inní tvo
Það er enginn að fara neitt. Sest aftur í sætið sitt
Já - ég læt þetta í ykkar hendur, ég lít hér bara við annað slagið náttúrulega, þið þurfið að dúsa hér daginn út og inn greyin.
Segðu, ég hef þurft að dúsa hér til að greiða fyrir að hafa selt sálu mína djöflinum á krossgötum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Bölvaður svikarinn gerir mig að meistara í að spila á úkulele í stað hefðbundins gítars. Það verður enginn að goðsagnakenndum blúsara með því að spila á úkúlele. Fjandinn hafi það.

Maður þarf að vera nákvæmur í samningum þegar maður semur við hann, hann nýtir sér allar glufur fyrir þennan sjúka húmor ég ætti að vita það.klappar ofurlittla trippinu sínu og heldur svo áfram við prónaskapinn
mikið djöfulli er þessi maður ljótur