Eru ekki allir voða spentir að horfa á hina göfugu íþrótt Formula1 sem eins og allir vita er að byrja um helgina.
Það er notalegt til þess að vita að molbúar þessa lands fari nú að tolla heimavið um helgar. Það er von mín að þetta hækki nokkuð hið menningarlega nívo þeirra sem á sveimi verða.
hvað sér fólk eiginlega svona skemmtilegt við sjálfrennireiðar að aka í hringi?
Æj er þessi andskoti nú að snúa aftur. Þá fær maður engan frið fyrir plebbum sem angra mann með pælingum um burrubíla og tilraunum til að sannfæra mig um að einhver Þjóðverji með döðluandlit sé nú bestur. Svei.
Þetta er svona tippakeppni.
,,Hey minn liðstjóri eyddi meiri pening en þinn"
Frekar myndi ég vilja leika mér vísvitandi við að skemma í mér heyrnina. Og trúið mér, ég er ekkert mjög svo viljugur að heyra aldrei meir djazz á minni stuttu og hraðlifuðu ævi. . .
Sódómískt bölvað for-múludrazl. . .
Halldór blessi strætó
Formúlan er á allan hátt andsósíalísk og til þess fallin að afvegaleiða góða kommúnista. Formúlan er lágkúruleg aðferð til að stytta sér stundir.
Skilst að Ferrari bílarnir séu allir á sterum
Það er ekki vel séð að tala illa um Ferrari hérHringir í morð ehf og nær góðum samningu
Hér líðum við ekki að illa sé talað um formúluna!
Afhverju er þetta kallað formúlan?
Þetta er ekki nein bévítans formúla. Þetta eru einhverjir bölvaðir apar sem sóa miljörðum í að keyra i hringi og klessa á. Auk þess leggjast þeir svo lágt að nýta sér heimsku ríkissjónvarpsisn sem eyðir milljónum í að kaupa sýningarétt á þessari vitleysu.
http://josi.klaki.net/dagbok/safn/RuV
Heyr, heyr. Bönnum formúluna, enda um óæskileg vestræn áhrif að ræða, og verjum peningunum sem við það sparast til kaupa á uppsetningum sovéska ríkissjónvarsins á verkum Tolstoj og Dostojevskís. Kvikmyndun Sjálfstæðs fólks er áhugaverð hugmynd.
Væri ekki bara snjallræði að skella sér á ferð á Samyrkjubú með MÍR (Menningarfélag Íslands og Ráðstjórarríkjanna) og leggja hönd á plóg með hinum öreigunum.
Bein útsending frá Ástralíukappakstrinum hefst kl. 02.30
Ljómar upp
Þetta er ekki íþrótt! Þetta eru fullorðnir menn að keyra í hringi og er ekki áhugvert sjónvarpsefni nema þegar einhver stórslasar sig og eyðileggur bílinn sinn. Er þetta virkilega boðlegt?