Jæja, þá er þetta að skríða upp aftur.
Einhverjir hnökrar eru eins og venjulega:
1. Ef ykkur gengur brösulega að afskrá ykkur af borðinu farið þá í Internet Options og veljið þar 'Delete Cookies', svo virðist sem einhver kökumylsna af gamla spjallinu leynist enn í tölvum notenda.
2. Svo virðist sem menn þurfi að bíða óratíma, eftir að þeir hafa sent skilaboð á spjallið. Skilaboðin fara beinustu leið inn, en heimskuleg athugasemd um að nú muni menn flytjast sjálfkrafa á spjallborðið aftur blasa við án þess að nokkuð gerist. Þetta stendur til bóta.
Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að innskráninin virðist komin í lag. Húrra!
Já - og gaman að sjá ykkur rúsínugumparnir mínir.
Ó þakka þér Enter minn kær. Við bíðum bara rólegir eftir því að færast aftur á spjallborðið...
Er þetta Maryland Cookie eða Homeblest?
Ég verða aðsegja mað mér þykir Homeblest betra!
Cookiemonster Finnst eitthvað bogið við að innskráningin skuli eigi virka óeðlilega
Er þetta Maryland Cookie eða Homeblest?
Ég verða aðsegja mað mér þykir Homeblest betra!
Hvoru megin eru þær betri?
Gott að fá Baggalútinn sinn aftur. Jafnvel enn betra að hann sé kominn með varanlegt heimili á okkar ástkæra fróni.
Lifi Sannleikurinn!
vaknar í svitabaði hvað gerðist?!?!
Loksins, ég er búinn að vera í mögnuðum Baggalútsfráhvörfum...
Áttu sígó beibí?
Það var ekkert...
gefur Leibba karton af King´s eðalvindlingum...
fussar og sveijar áður en hann kveikir sér í síðasta Cohiba vindlingnum í kassanum
Maður er bara búinn að vera a götunni síðustu fimm daga. En það er gleymta og grafið.
Stútar einni kampavínsflösku
Svo... seinna meir, þá skulum við gera þenna þráð að laumupúkaþræði! Hlær ójarðlega, dregur annað augað í pung og drepur tittlinga með hinu
stórfín hugmynd, hversvegna að bíða?
Læðupokast eftir skúmaskotum Baggalúts, flissandi með sjálfum sér og flautandi lágt og sakleysislega
Svo... seinna meir, þá skulum við gera þenna þráð að laumupúkaþræði! Hlær ójarðlega, dregur annað augað í pung og drepur tittlinga með hinu
Það tilkynnist hér með opinberlega að friðargæsluliðið hér veit núna af þessari bráðsnjöllu hugmynd og mun beita sér fyrir að hún verði að veruleika með tíð og tíma.