Garðabær?
Hvað er hægt að gera í Garðabæ?
Keyra!
Það er það eina sem ég hef fundið sem hægt er að gera í Garðabæ. Keyra. Keyra milli Hafnarfjarðar og Kópavogs. Eða réttara sagt Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Kópavogur, eða Bolabyggð eins og hann ætti að heita, er í raun bara úthverfi Reykjavíkur.
En nú er komið eitthvað nýtt sem hægt er að gera í Garðabæ: Berja Garðbæinga og kveikja í bænum. Frábær hugmynd. Ég er með.
Þetta er eitthvað sem þarf að framkvæma
Sussussuss.. það er margt gott sem kemur frá Garðabæ. Múgæsing og níð eru ekki í anda okkar Baggalýtinga, það held ég að þið hafið smitast af "Hugavírusnum". Svona tal er eitthvað sem maður ætti von á að sjá þar á bæ. Legg ég til að allt tal um kveikja í heilu bæjarfélögunum og lemja á innfæddum verði snarlega hætt og "afhugun" er eitthvað sem sum ykkar þyrftuð að skoða. Strunsar út af þræðinum og skellir á eftir sér
Nykur, þetta var bara svolítið flipp.
Flipp hefur ekki drepið neinn hingaðtil.
Ætli Nykur sé þá gelgja frá Garðabæ? Hann var eitthvað svo hvumpinn greyið.
Gelgja frá Garðabæ, gerist það mikið verra?
Blísrar ákavíti útúr augum sér og nærri springur í tryllingi röklausrar hugsunar
fretar
Ætli Nykur sé þá gelgja frá Garðabæ? Hann var eitthvað svo hvumpinn greyið.
Eða bara frá Garðabæ ?
Ekki hef ég orðið var við neinn gelgjuskap í skrifum Nyks.
Reyndar ekki Hilmar. Þá hlýtur hann bara að vera Garðbæingur. Greyið.
sem minnir mig á... Hvergiland er ennþá ófundið... er einhver með upplýsingar um staðsetningu þess?
sem minnir mig á... Hvergiland er ennþá ófundið... er einhver með upplýsingar um staðsetningu þess?
Spyrðu prófessor Drövel. Hann eitthvað líku því minntist hann á frá leiðöngrum sínum um frumskóga Oslófjarðar. (http://www.aftonbladet.se/puls/0002/04/drovel.html)
sem minnir mig á... Hvergiland er ennþá ófundið... er einhver með upplýsingar um staðsetningu þess?
Má vera að þér eigið við Hvergigerði, það er jú frekar torséður andskoti og fæstir vita af tilvist þess. En ef vel er að gáð þá má sjá það ofan úr Kömbunum í góðu skyggni.
Ég er lengi búinn að leita að því, en finn ekkert nema Hveragerði...
Ég er lengi búinn að leita að því, en finn ekkert nema Hveragerði...
það er jú einn og sami staðurinn
Reyndar ekki Hilmar. Þá hlýtur hann bara að vera Garðbæingur. Greyið.
Það hlýtur bara að vera Hakuchi.
Í fyrsta lagi: Bæjarfélag sem elur af sér kvenkost eins og hana Hófí okkar getur ekki verið annað en gott!
Í öðru lagi: Ef ég má benda á tilmæli ritstjórnar um þennan þráð: "guðs bænum gætið háttvísi - og vottur skynsamlegra umræðna væri líka vel þeginn". Ég var einfaldlega að heiðra þessa ágætu reglu. Mér finnst og ég er ekki einn um það að umræðan hér sé farin að minna ískyggilega mikið á umræðuna á huga.is og öðrum gelgjuþráðum. Kannski enginn furða að baggalútur sé merktur sem "íslensk unglingasíða" í bókasafni GBæ.
Hveragerði og Hvergigerði sami staðurinn? Það gæti útskýrt ýmislegt.