Ég spái því að Borghyltingar snæði Vogamenn með húð og hári, auðveldlega. Annars tel ég tíma kominn á að MR hobbitum verði meinaður aðgangur að þessari keppni og fái þess í stað innanskólakeppnisþátt á Skjá Einum undir nafninu ,,Geispað Hærra." Þar gætu nýjir MR-ingar jafnt sem gamlir Matthildingar gert sér glaðan dag saman.
Sáuð þið keppnina?
Borgarholtsskóli rúllaði þessu upp.
32-19 ef ég man rétt Ljómar upp
Borghyltingar mæta MR á næsta fimmtudag. Ég hefði nú vilja sjá þá keppa á móti MR í úrslitum en jæja. Þetta er keppni sem allir ættu að fylgjast með og sjá MR steypta af hólmi í fyrsta skiptið í langan tíma.
Það eru kokkar í MK - The are just cocks in MK
hahaha, mig hlakkar til að sjá MR á móti Borgarholtsskóla.
MR-ingar munu rúlla þessu upp eins og fyrri daginn, eða ætti ég að segja fyrri árin? Borghyltingar munu ekkert þurfa að skammast sín fyrir það.
Við munum nú bara sjá til með það, Bósi ljóshár!
Góðar fréttir að Menntaskólinn í úthverfinu skuli hafa sigrað ófreskjuna í fjósinu (mr).
Nú langar mig bara að vita hvenær mr-ingar munu hengja taplið sitt við hátíðlega athöfn.
Þetta var glæsileg keppni, rosalega spennandi að mínu mati. Þvílíkt spennufall þegar Logi sagði "nei" við svari MR-inga við síðustu spurningu...
Svo var þetta líka góð afsökun til að skella sér á fyllerí á fimmtudegi.
En er plebbin í Borgarholtsskóla? Hún virðist allavega hafa leynilegar upplýsingar um baráttusöngva þar á bæ...