Svo vil ég auglýsa eftir seinnipartinum við kvæði Helga Hóseassonar:
"Jehóvi með jarlinn stríða
Jesú undir komið fékk."
Sannar er að þetta er ekki fyrripartur heldur seinni. Svo hljóðar bálkurinn -
"Sprækur hóvi sponsar taus,
sprellar leingi nætur,
jarli verður lögur laus,
lögur taus er sætur.
Mikið Jósep mátti smíða,
María var heitin rekk;
Éhóvi með jarlinn stríða
Ésú undir komið fékk.
...HANN SJÁLFUR SMOLLINKRÍJAÐI KONU HANS...
Á sínum tíma smollinkríaði Éhóvi gamli Maríu, hússfreyu í Nasareti, og
Gvuðspjallaði hana. Sonur þeirra var hinn alræmdi Ésú; ýmsir hafa gert
honum upp orð og athafnir. Hann var óhemjulega göldróttur, vitnaði óspart
í föður sinn og laug dyggðum upp á hann.
Þetta er úr kvæðabálknum ,,RÍMUR af Ésu Kryssti -Orðtar af þeim eðla Gvuðsmanni sir Brandi. Tileinkaðar K.F.U.M. Anno MCM og síldin."
Ég verslaði þetta af honum Helga einn sumardag fyrir tíukrónur, og aldrei að vita nema hann eigi nokkur stykki til sölu ef þið rekist á hann.
ég hringdi í 118 og spurði um Guð Alheimsson. Mér var bent á AA samtökin í Tjarnargötu?
Miklar þakkir átt þú skyldar SlipknotFan13 að setja þetta hér á vefinn. Ég er bara það innblásinn af eldmóði Helga að ég ætla að setja upp smá þráð á kvæðasíðunni þar sem menn geta ort upp á himnafeðgana nokkurt níð.
Þetta er rangt. Biblían er skáldsaga. Þú gætir alveg eins reynt að hafa samband við Morgan Kane með því að hringja í 118 eins og að leita guðs í biblíunni.
Að sjálfsögðu máttu meina það sem þér sýnist. Ég hef aðra meiningu. Þó þykir mér sanngjarnt að spyrja hvort að þú dæmir bók sem að þú hefur ekki lesið?
Lesið hef ég lygi um helgan anda.
Lausnari heimsins o´n af himnum kom.
Slagtaði Davíð sínum erkifjanda.
Syninum að nafni Absalom.