Það er dáldið fyndið hvað menn eru uppteknir af þeim meintu himnafeðgum og öllu kerfinu í kringum þá, þótt liðin séu um 2000 ár frá meintri hérvist sonarins. Þar sem tilvist guðs er umdeilanleg og vísindin hafa flett ofan af mörgu úr Biblíunni sem röngu og hindurvitnum, þá er það að menn séu að ræða um meintan heilagleika þeirra og himnavist álíka gáfulegt og ef menn væru ennþá að tala um ljósvakann (var hann ekki kallaður Flógeston). Menn komust fljótt að því að hann var alger misskilningur manna með of ríkt ímyndunarafl.
Svo vil ég auglýsa eftir seinnipartinum við kvæði Helga Hóseassonar:
"Jehóvi með jarlinn stríða
Jesú undir komið fékk."
Ég tók bara ekki nógu vel eftir þessu þegar ég horfði á þáttinn. Fyrriparturinn frestist ói minni en ekki sá seinni.
Mér finnst svo asnalegt að við séum að trúa á einhverja trú sem komin er af Aröbum!
Ég held ekki að þeir hafi beinlínis verið forfeður þessarar trúar. Og ekki er sá hópur manna sem í daglegu tali nefnast Arabar heldur upphafsmenn trúarinnar á guð Abrahams. En að öðru leyti hittir þú naglann á höfuðið. Auðvitað þurfum við að setjast niður, velja okkur einhvern hóp manna af skynsemi og góðu viti, og fela þeim svo að hanna fyrir okkur trú. Það er gersamlega óþolandi að búa við núverandi ástand. Þó getum við huggað okkur við það að í það minnsta rennur þetta ekki frá Færeyingum.
Guðlast og ekki guðlast...ef menn nenna að pirra sig á einhverju sem er andstætt þeirra trúarskoðun, þá þeir um það.
Tja, er guðlast ekki það þegar menn lasta Guð? Það er sérhverjum heimilt að gera það, en svo eftir öðrum komið hvort þeir taka það nærri sér. Ég get til dæmis lastað Volvóinn hans Núma. Sjálfsagt yrði hann sár, en það þarf þess enginn annar. Eflaust taka margir sér ýmislegt nærri sem hér kemur fram en þeir verða bara að eiga það við sig sjálfa.
Vandamálin byrja hinsvegar ef einhverjir telja að guðlast kalli á refsingu frá guði og þeir skipa síðan sjálfa sig í hlutverk þeirra er framkvæma skuli refsinguna.
Ég las í skólablaði Vezlinga (les. bók) viðtal við guð, þar koma hann barasta nokkuð vel fyrir og virkar bara sem fínasti gaur... klórar sér í höfðinu
Það eru hommar í Verzló. Ég hef nú reyndar ekkert á móti hommum en það eru sammt hommar í Verzló
Gvöð! Fer allur hjá sér og lætur Edith Piaf í geislaspilarann
Nei í guðanna bænum slökktu á þessu.
setur ICY-SPICE (Leoncie) á fóninn og byrjar að dansa
Ef hommar gætu flogið væri verzló flugvöllur! Hlær sig máttlausan
Þessi er alltaf jafn fyndinn Ljómar upp
Nei í guðanna bænum slökktu á þessu.
setur ICY-SPICE (Leoncie) á fóninn og byrjar að dansa
Nei má ég frekar biðja um eitthvað skemmtilegra en þetta. Þetta er eitthvað það leiðinlegasta sem ég hef upplifað. Skellir Leningrad Cowboys í spilarann
hver í dauðanum er þessi Guð sem allir eru að tala um? og hvar finn ég hann? Er hann með GSM?
Ég þyrfti virkilega að ná í hann.
Jæja, kannski best að segja eitt orð hér án þess að grípa í gríntaugina
Löngum hef ég talist trúaður einstaklingur á Guð Abrahams og Móse. Sama hvað öllum ofanafflettingum vísindanna líður (sem allar eru drengar til baka fyrr eða síðar) þá stendur sú trú eins og kletturinn. Ástæða þess er að miklu leyti sú að ég hef tekið þá afstöðu.
Á sama hátt hafa einhverjir félagar á baggalúti tekið þá afstöðu að kalla sig trúleysingja, og er líklegt að afstaða þeirra sé jafnsterk. Þess vegna hafa rökræður um vísindalegar sannanir til eða frá ekkert að segja.
Ástæða þess að Kristnir einstaklingar reyna að boða trú sína, er ekki sú að þeir vilji endilega fara í taugarnar á trúleysingjunum, pirra þá eða valda þeim óþörfum heilabrotum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að með Kristindóminum kemur líf sem veitir von og frið. Einnig gleði yfir að hafa einhvern sem hægt er að snúa sér til í öllum aðstæðum lífsins, hvort sem er gleðilegum eða grátlegum.
Kristin trú boðar kærleika til náungans og þess vegna vilja kristnir einstaklingar að náunginn fái sama tækifærið, og fái að upplifa sömu gleðina. Þetta er ekki spurning um "ég er betr en þú" eins og svo margir halda, heldur er þetta spurning um kærleika til náungans.
Guð er bílastæði (merkilegt vekkjakrot sem ég sá einus sinni)
Annars ættum við að velta þessu með múslimana betur fyrir okkur. Það er ekki bara stjörnufræði og talnakerfi sem við eigum þeim að þakka heldur líka læknisfræði. Þeir voru farnir að skera upp fólk með góðum árangri stuttu eftir að menn fóru að búa á Íslandi.
Nú þegar menn minnast á hvernig þeir eru staddir núna ættum við kannski að líta á það sem víti til varnaðar. Þó við vesturlandabúar teljum okkur hámenningaleg og vísindaleg ofurmenni þá getur allt kerfið hrunið hratt þegar stríðsæsingarmenn og ofsatrúarmenn ná að þjappa saman óánægju hópunum í heiminum.
hrekkur upp með andfælum ha!? nei!
hver í dauðanum er þessi Guð sem allir eru að tala um? og hvar finn ég hann? Er hann með GSM?
Ég þyrfti virkilega að ná í hann.
Viljirðu finna hann, eða í það minnsta fræðast um hann, þá hefur hann skrifað framúrskarandi bók. Biblíuna. Fæst í öllum betri bókaverzlunum.
Kormákur Hálfdán vill meina:Viljirðu finna hann, eða í það minnsta fræðast um hann, þá hefur hann skrifað framúrskarandi bók. Biblíuna. Fæst í öllum betri bókaverzlunum.
Þetta er rangt. Biblían er skáldsaga. Þú gætir alveg eins reynt að hafa samband við Morgan Kane með því að hringja í 118 eins og að leita guðs í biblíunni.[/quote]