Ég var að reka augun í það að ég er kominn á 1. blaðsíðu heimavarnaliðsins. Eru þetta ill tíðindi.
Það hefur hvarflað að mér að prófa að hafa einn Baggalútslausan dag í hverri viku eða neita sjálfum mér um að fara á Baggalút eftir miðnætti. Þessar hugrenningar gengu svo langt að ég var farinn að velta því fyrir mér hvort ég ætti að fá mér ærlega vinnu! Hvílík hugmynd!
Vita fastagestir hvort til eru einhver meðferðarúrræði við þessu?
frekar fara á Baggalút um næturnar og ekki um daginn.
Ég er á bls. 8 til 9 með 8 innlegg og verður þetta það níunda. Vekur það mikla furðu mína hversu fá innlegg þarf til að komast hátt á listann. Þarf ekki mörg innihaldslaus innlegg til að komast enn hærra... Les þetta innlegg mitt yfir og líður illa yfir innihaldsleysi þess Þetta er ekki yfirlýsing þess efnis að ég muni storma inn á þennan vef með fleiri svona þarflaus innlegg.
Enn og aftur skal minnt á að gæðin skipta máli ekki magnið. Ég var á firstu síðu heimavarnarliðsins en nú er ég ekki alltaf á Baggalút heldurbara mjög oft og er komin á aðra síðu það sem mér lítur vel.
Til að verða ekki of háður Baggalút þarf að læra að njóta hans. Ærleg vinna er ekki óhugsandi en þó verður að gæta þessa að hafa aðgang að veraldarvefnum í vinnunni annars verða fráhvarfseinkennin of slæm.
innlegg mitt hér að ofan er innantómt þvaður ég stefni hraðbiri á firstu síðu heimavarnarliðsins á ní Brestur í óstöðvandi grát
Ég tek undir með Dr. Zoidberg að það eru gæðin en ekki magnið, sem skipta máli. Þetta hef ég reyndar sagt áður. Svo er vistin á bls. 2 ekkert svo slæm. Þar er margt ágætis fólk.
Svo ekki sé nú minnst á blaðsíðu þrjú.
Löngum verið afar vinsæl síða og þótt mikill heiður að komast á blaðsíðu þrjú.
Blaðsíða þrjú væri svosem ágæt, en mér líkar allskostar illa við að deila síðu með þið-vitið-hverjum. (Ekki Voldemort heldur hinum)
ég tel að 10. sætið sé besta sætið ekki og hátt og ekki of lágt
Um hvað eruð þið að tala? klórar sér í höfðinu
Ég fékk nýja hugmynd. Ef ég eyði innleggjum frá mér hljóta þau að dragast frá og ég lækka aftur á listanum.
Gleðst yfir að hafa fundið sér nýtt hlutverk á Baggalút.
Fuss! Ég ætlaði að lýsa mig einvald yfir fjórðu blaðsíðu, en svei mér ef það er ekki búið að kjöldraga mig yfir á þá þriðju. Það er ekki tekið út með sitjandi sældinni að vera táningsaðdáandi Slipknot...
Jah...stundum er bara gaman að koma með innihaldslaus skot eins og þetta hérna...
kveikir upp í arninum, treður tóbak í pípuna, tendrar í og setur sig í spekingslegar stellingar
Þegar ég var efstur þá hafði ég stöðugar áhyggjur yfir því. Ég fór í internet-afvötnun reglulega og var það hressandi, en maður kom þó alltaf fílefldur aftur. Nú er Hakuchi kominn á toppinn og það er ekki vegna þess að ég skrifa eitthvað minna. Ég er búinn að sjá það út að þeir sem eru í toppsætunum eru ekki endilega þeir sem eru að skrifa mest þá stundina, heldur frekar þeir sem eru búnir að vera lengst og mæta reglulega á svæðið til að taka þátt í Baggalút. En ég mæli samt með því að menn setji hugsun í það sem þeir segja hérna og það geri ég oftast nær, þó stundum komi frá manni eitthvað sem flokkast mætti sem bull...eins og þetta innlegg