Halló halló
Langaði bara að tilkynna komu mína hingað. Ég hef verið að ljóstillífa á öðrum spjallborðum eins og málefnunum og alvörunni en mig langar alveg obboslega að ljóstillífa líka hér.
Ég sérhæfi mig í sérlega slæmri þarmafýlu. Það er samt bannað að rífa upp blöðin mín og skeina sér á þeim. Og já...ég er PLANTA ekki blóm Ljómar upp
takk takk
Hlakka til að ljóstillífa hér með yðrum Stekkur hæð sína [/img]
Já, sæl vertu planta og láttu eins og heima hjá þér og megi koltsýrlingur vera þér hagstæður....
en ég minni þig HlewgastiR á þá staðreynd að enn er verið að doka eftir innleggi þínu á Stafrófstjattinu hinu fyrra, en þar er gerð tilraun til þess að mynda þráð með innleggjum allra virkra notenda...hmm..enginn má undan líta...
Þar að acyl er planta en eigi blóm má þrengja hringinn talsvert. Umrædd persóna er þar með t.d. eigi rós, fjóla, stjúpa e.þ.h. en gæti verið tré. Hinsvegar vantar að skilgreina nákvæmlega hvað er blóm og hvað er eigi blóm. Hvað t.d. með arfa og njóla ?
hlewagastiR, ekki HlewagastiR.
Hvað með "hlewagastiz"? Ég spyr bara.
Þar að acyl er planta en eigi blóm má þrengja hringinn talsvert. Umrædd persóna er þar með t.d. eigi rós, fjóla, stjúpa e.þ.h. en gæti verið tré. Hinsvegar vantar að skilgreina nákvæmlega hvað er blóm og hvað er eigi blóm. Hvað t.d. með arfa og njóla ?
Þörf og áhugaverð spurning, Vladimir. Haugarfinn blómstarar, svo og hjartaarfinn, þannig að þau afbrigði mætti með réttu flokka sem blóm. Njólinn er erfiðari viðfangs...gætu menn sæst á að kalla hann bara 'jurt'?
Skelfilega er þetta ræfilsleg planta hellir úr ákavítisflösku út í blómapottinn
Ég er planta. Ég skal sætta mig við það að vera kölluð jurt. En blóm er ég sko ekki. Og hver sá sem tengir mig við hass er réttdræpur í mínum augum. Blótar herfilega og rífur hár sitt
En annars finnst mér dálítið leiðinlegt að myndin mín er ekki í lit. Fallegu grænu blöðin mín sjást ekki. Er nefnilega mikið að hreykja mér af þeim. Ég ber reglulega á þau rjóma til að þau öðlist meiri glanz Ljómar upp
Þú ert kunnugleg planta Acyl. Amma mín á plöntu sem er greinilega náskyld þér. Plantan heitir Gunnar og hefur sérhæft sig í arómaþerapískri heilunarmeðferð. Þekkist þið nokkuð?
Gunnar!!! Stekkur hæð sína Æskuvinur minn og félagi. :)
Halló blóm.
Mússímússí mússí múss...
Og já, megi gæfan fylgja þér um ókomna framtíð hér á Baggalút. Fyrir hönd umhverfisráðuneytis Baggalútíu vil ég bjóða þig formlega velkomin/n á Baggalút.
mér finnst nú að hann ætti nú eiginlega að heyra undir landbúnaðarráðuneytið
Ég var nú bara að bjóða þetta blóm velkomið. Ekkert annað.
klæðir sig í úlpu og rænir eitt stykki banka
Ég var nú bara að bjóða þetta blóm velkomið. Ekkert annað.
Ég er ekki blóm ég er PLANTA hoppandi öskuill jurt
Segir mér það já.
Ég er nú ekki alveg fæddur í gær. Ég þekki munin á blómi og plöntu og þú ert blóm.