Nú þegar vér lesum um hve vel svikamyllupeningapíramídum á borð við Sprinkle Networks gengur að plata milljónir af löndum vorum hvarflar að oss hvort eigi væri ráð að byggja skattkerfi Baggalútíu upp á svipaðan hátt með ríkissjóð efstan í píramídanum ? Þá myndu skatttekjurnar stóraukast sökum þess hve margir fengju dollaraglampa í augun er þeir frétta af að farið sé að styttast í útfyllingu skattframtals.
Skattkerfi Baggalútíu verður byggt upp á keðjubréfum
Það ágæta fylki Texas í Bandaríkjum vestur ku ekki leggja fylkisskatt á þegna sína því það hefur svo miklar tekjur af því að selja og leigja land sem í er olía. Einnig vil ég benda á furstadæmið Mónakó, sem hefur tekjur sínar af spilavítum. Mætti ekki nota eitthvað svipað kerfi í Baggalútíu?
tjah.. það er nú stutt í að við finnum olíu.. síðan erum við með þessar óþrjótandi kóbaltæðar en hann Blástakkur gæti opnað spilavíti þar sem færeyingar er neyddir í Baggalútíska hugarorku-rúllettu.
Getum við ekki notað sænsku aðferðina og gert út svikamyllur í öðrum löndum og aukið þannig gjaldeirisinnstreymi í landið.
Ég las það um daginn að frakkar hafi eitt sinn gefið út sjóræningjaleyfi þannig að franskir sjómenn rændu skip annarra þjóða. Þannig getum við selt framtaksömum mönnum svikamylluleyfi gegn ágóðahlut og að því skilyrði settu að þeir herji einungis á önnur lönd (auðvitað á meðan önnur lönd eru til)
Starir þegjandi út í loftið
Ég las það um daginn að frakkar hafi eitt sinn gefið út sjóræningjaleyfi þannig að franskir sjómenn rændu skip annarra þjóða.
Starir þegjandi út í loftið
Voru það ekki englendinar og var ekki Francis Drake þar fremstur í flokki? Annars er núverandi ríkisstjórn með svipað fyrirkomulag í gangi nema hvað það kallast "kvótakerfið".
Hvað með skattheimtumenn, sem ganga milli húsa með svona kistil á milli sín og berja síðan eymingjana sem eiga ekki aur það er eitthvað svo síðrómantískts. Ljómar upp
Hugmynd Andskotans er stórkostleg, hún tryggir að er vér leggjum undir oss önnur ríki verða þau nánast gjaldþrota en allur (fyrrverandi) auðurinn (þeirra) yrði hjá oss og yrði þ.a.l. litið á oss sem efnahagslega bjargvætti.
Ég las það um daginn að frakkar hafi eitt sinn gefið út sjóræningjaleyfi þannig að franskir sjómenn rændu skip annarra þjóða.
Starir þegjandi út í loftið
Voru það ekki englendinar og var ekki Francis Drake þar fremstur í flokki? Annars er núverandi ríkisstjórn með svipað fyrirkomulag í gangi nema hvað það kallast "kvótakerfið".
Hvað með skattheimtumenn, sem ganga milli húsa með svona kistil á milli sín og berja síðan eymingjana sem eiga ekki aur það er eitthvað svo síðrómantískts. Ljómar upp
Það voru Englendingar og Frakkar jafnvel sem gáfu leyfi á aðrar þjóðir, jafnvel fleiri ef ég man rétt. Englendingar voru þó duglegastir við þetta á sínum tíma, sérstaklega í stríðum sínum við Spánverja og síðar Hollendinga.
Sjóræningjar fengu það sem kallað var "letters of marque" sem veitti þeim heimild í nafni ríkis að ráðast á skip annarrar þjóðar sem var í stríði við þær. Þetta bréf gerði það að verkum að sjóræningjar urðu sjálfboðaliðar í her viðkomandi lands. Af þessum sökum voru sjórán þáttúr í hernaðarátökum síns tíma, en taka skal fram að hér er verið að ræða um sjóræningja á 16-17. öld. Á 16. öld voru sjóræningjar kallaðir "pirates" eða "privateer" á engilsaxnesku og stafaði af þeim mikil ljómi ævintýramennsku og voru þekktustu ræningjar þjóðhetjur í baráttunni við andstæðingana. Þar er átt við menn á borð við Francis Drake og Hawkins. Þó sérstaklega Sir Francis Drake en hann var mikill kappi sem tortímdi spánska flotanum við Cadiz og seinkaði þar með för hinnar frægu armöðu til Englands um amk. ár og átti síðan stóran þátt í sigri á henni við Englandsstrendur árið 1588.
Þegar komið var fram á miðja 17. öld voru gömlu nýlenduveldin hætt að styðja við bakið á sjóræningjum og farin að snúast gegn þeim. Nú var talað um sjóræningja sem "buccaneers" og var ímynd þeirra orðin alræmd og algerlega laus við þann þjóðhetjublæ sem áður var. Engu að síður voru þeir alræmdir á Karíbahafinu og kostuðu spönsku krúnuna fúlgur fjár því hún þurfti að borga fyrir vopnaða fylgd með verðmætum verslunarskipum.
Já og hagfræðilega séð er flatur skattur hagkvæmastur. Skattar á verð eru óhagkvæmari því þeir bjaga verðhlutföll og riðla upplýsingaboðhlutverki verða á vörum. Flatur skattur hefur hins vegar þann ókost að vera félagslega óréttlátur því hann kemur jafnt niður á fólk, óháð tekjum þess. Gera má ráð fyrir að almenningur muni rísa upp gegn slíkri kúgun enda varð þessi tegund skatta hinni miklu Thatcher að falli á sínum tíma. Verði flatir skattar lagðir á er nauðsynlegt að Fólskumálaráðuneytið og varnarmálaráðuneytið verði reiðubúin með pyntingar, kúgunar og óeirðalögerglusveitir til þess að kúga fólk til hlýðni.
Hægt væri að milda áhrifin með glæsilegum fyrirheitum og loforðum um betri tíð. Ég legg til að farið verði í auglýsingaherferð þar sem hverri fjölskyldu í landinu verði lofað einum Færeyjingi á heimili sitt fyrir árið 2006. En það felur í sér innlimun Færeyja og brottflutnings fólksins þaðan á heimili almennings. Færeyjingana væri hægt að nota sem gæludýr, ræstitækna, uppalendur o.s.frv. Efast ég ekki um að þjóðin muni hrífast af slíkum áætlunum og gleyma hagfræðilega hagkvæmum flötum sköttum fyrir vikið.
mér líst vel á það
Flatur skattur + pyntingar....
Já.. ok.
sammála
Hljómar ískyggilega vel.
Þessi hugmynd sem Andskotinn setti fram. Afhverju hefur engum öðrum dottið hún í hug!?
Því hún brýtur í bága við allt sem heitir siðfræði eða siðferði.
hvað er siðfræði?
Æi ég er eitthvað þreyttur. Siðferði meina ég. Siðfræði fór óvart þarna inn
ókei...
hugsar sig lengi um og lítur svo á plebban með spurnarsvip
hvað er siðferði?