Hvernig stendur á því að karlmennin hér á Baggalút hafi ekki vikið einu hlýlegu orði að okkur fulltrúm kvenþjóðarinnar í tilefni dagsins? Hvar eru blómvendirnir? Hvar er kaka ársins? Hvar eru aðdáendabréfin? Af hverju fengum við ekki morgunmat í rúmið?
Júlía láttu þá heyra það. Bölvaðir drullusokkar.
Já þessi dræsa, framhjáhaldari og ekkert annað! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Fyrirgefðu mér elsku Júlía mín. Blómaskreytingarmennirnir fylltust af óvæntum metnaði er ég sýndi þeim mynd af þér og unnu í alla nótt til að skapa þennan blómvönd, þér til heiðurs.
Gefur Júlíu feiknarstóran blómvönd fullan af fágætum blómum, sérlega valinn af færustu blómasérfræðingum Lundúnarborgar,
Hef ég sagt þér nýlega að þú ert forkunnarfögur sólargyðja sem geislar af þokka, gæsku og blíðu; að þú ert sú sem gefur hugtakinu fegurð hina sönnu merkingu þess orðs; að þú ert hin sanna kona sem enginn maður með vott af lífsneista í hjarta getur nokkurn veginn staðist; að þú veitir okkur dauðlegum verum eitthvað til að lifa fyrir, eitthvað til að berjast fyrir í grámyglu hvunndagsins.
Ég þakka þér auðmjúklegast fyrir að vera þú. Það hefur verið heiður lífs míns að fá að dá þig.
Kveðja,
Hakuchi
Hjásvæfill.
Gott hjá þér, Hakuchi. Eitt gott dæmi um alvöru karlmann, herramann.
Vonandi ekki eindæmi.
Já, spurt er, spurt er. Kona bara spyr. Og kona á ekki að þurfa að spyrja. Á ekki að biðja einu sinni um. Ekki á konudegi. Nei nei. Er ekki einmitt tilgangurinn með konudegi sá?
Sko.
Á öllum hinum dögum er rétt hjá ykkur karlmönnum, þannig séð, að við eigum ekki von á því, að þið lesið hugsanir okkar. En á þessum degi, þessum degi einum væri æskilegt að leggja sig aðeins fram við svolitinn hugsunalestur.
Við höfum gert okkar besta til að auðvelda þetta verkefni, vitandi að allir eru ekki jafn skyggnir að eðli. Dagblöð og aðrir fjölmiðlar hafa jú fjallað um konudag sem fyrirbæri og stungið upp á ýmsu sem glatt gæti konuhjarta. Pryðilegt uppsláttarrit eftir Árna Björnsson, Saga daganna, nefnir konudag rétt eins og bóndadag, eftir því sem ég best man.
Sem sagt: hjálpunargögnin fyrirfinnast.
Drífiði nú.
Kemur feikistórum og ægifögrum blómvendi Hakuchis fyrir í stórum vasa, setur myndirnar af honum aftur á sinn stað og hættir við að skipta um skrá]
Hvernig gat ég efast, þó ekki væri nema eitt andartak - gersemi ertu, Hakuchi minn!
Júlía láttu þá heyra það. Bölvaðir drullusokkar.
Já þessi dræsa, framhjáhaldari og ekkert annað! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ætli maður verði ekki að vera góður við gamla fólkið líka.
Hakuchi gefur plebin notuð plastblóm sem hann keypti á skransölu í kolaportinu.
Svanhildur Hólm er eins og barbídúkka. Fræðilega séð falleg en gersamlega algerlega laus við allt sem hægt væri að líkja við kynþokka.
Hakuchi, þakka þér kærlega fyrir blómin. Ljómar upp
Beitir áhrifum sínum sem kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðherra til að setja upp 30 metra háar sjálflýsandi kóbaltstyttur af blómavöndum framan við smekksráðuneytið og hasarmálaráðuneytið með nöfnum Júlíu og Mosu á. (Vonar jafnframt að eigi sé um "overkill" að ræða)
Varðandi kosninguna um kynþokkafyllstu konu ársins er það álíka marktækt og þegar Ástþór Magnússon var næstum kosinn maður ársins fyrir fáeinum árum. Spurning er hvort ríkisstjórn Baggalútíu eigi að beita sér fyrir annarri svona kosningu er mark væri á takandi.
Tekur öll blómin hans Haralds Austmanns og hleypur í burtu
Sumir héldu konudaginn hátíðlegan í dag.
Konur, hverjar sem þið nú eruð, til hamingju með það!
Skríður undan rúminu, lítur á klukkuna og horfir flóttalega í kringum sig.
Ææææ. Ég missti af konudeginum.
Er ekki örugglega kominn karladagur aftur?
Ég hélt mig nú bara í felum þennan dag.
Vaknar skelþunnur Geisp...er ekki sunnudagur núnalítur á dagatalið og panikkar...rýkur út í blómabúð og kaupir blóm...áttar sig síðan á því að hann á ekki konu hvað á ég að gera við þessi fjandans blóm??
Vér þökkum fyrir falleg blóm og hlý orð, höggmyndalist sem hugmyndalist. Þið eruð sjentilmenn allir, þið góðu Baggalýtingar.
Fagrt skal mæla
ok fé bjóða
sá er vill fljóðs ást fá,
líka leyfa
ins ljósa mans:
sá fær er fríar.
Beitir áhrifum sínum sem kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðherra til að setja upp 30 metra háar sjálflýsandi kóbaltstyttur af blómavöndum framan við smekksráðuneytið og hasarmálaráðuneytið með nöfnum Júlíu og Mosu á. (Vonar jafnframt að eigi sé um "overkill" að ræða)
Varðandi kosninguna um kynþokkafyllstu konu ársins er það álíka marktækt og þegar Ástþór Magnússon var næstum kosinn maður ársins fyrir fáeinum árum. Spurning er hvort ríkisstjórn Baggalútíu eigi að beita sér fyrir annarri svona kosningu er mark væri á takandi.
Mæltu manna heilastur, Vladimir! Bagglýtingar eru jú annálaðir smekkmenn og mun hæfari til að meta kynþokka en þessir vesalingar sem eru að hringja í útvarpið alla daga.
Kóbalt-blómvendir "overkill"?! Aldrei - takk fyrir sendinguna!