Eigum við ekki að stofna stjarnvísiklúbb og hafa almenna fræðslu um hin ýmsu málefni tengt stjarnvísindum? Það fór nefnilega dáldið fyrir brjóstið á mér þegar framhaldsskólanemar í Gettu Betur gátu ekki svarað eins einfaldri spurningu og um Nifteindastjörnuna.
Afbragðshugmynd Skabbi minn. Þá er bara að finna einhverja sem hafa vit á stjarnvísi. Blástakkur ætti að vita eitthvað í sinn haus hvað þetta varðar.
Náði NASA ekki myndum af því í dag eða gær þegar svartaholið tætti í sig eitt stykki sól?
NASA!? Djíses kræst, fékk ég svo ekkert credit fyrir að ná þessum myndum!?
Ég veit ekki betur en að Hilmar hafi lagt líf og limi í hættu við að ná "close up" myndum af þessi fyrirbæri. Mér skilst að svartholið hafi étið annan hanskann af geimbúningnum.
Annars get ég frætt ykku um ýmisleg stjarnvísindaleg efni. Bara spyrja.
Þetta líst mér vel á. Látum ljós okkar skína (ha,ha,ha,).
Til dæmis benda athuganir mínar til þess að sólin muni innan skamms byrja að þenjast út og gleypa fjórar innstu pláneturnar, þ.m.t. jörðina. Óróleikinn sem varð í haust og lýsti sér m.a. í mörgum og stórum sólgosum er forsmekkur þess sem koma skal. Eftir um það bil 30.000 ár, verður jörðin ekki lengur til. So there!
Já, hitinn mun hækka um það bil hálfa gráðu á 10 ára fresti þangað til hér verður ólíft.
En löngu áður en hittinn kæfir jarðarbúa, verður allur ís á jörðinn bráðinn og yfirborð hafsins verður um 40 metrum hærra en það er nú. Veðrakerfið breytist (eins og það sé ekki byrjað nú þegar fyrir tilverknað gróðurhúsaáhrifa) og náttúruhamfarir verða tíðari.
Nú er rétti tíminn til að prómótera Íslandi sem tempraðri sumarleyfisparadís! Þegar hitinn verður orðinn óbærilegur um miðbaug jarðar verður hann einmitt mátulegur hér á landi. Hólmavík - Hin Íslenska Íbiza! Nice Ring To It eins og þeir segja vestanfrá!
Við verðum að hefja byggingar á risagirðingu allt í kringum okkar fagra Ísland, svo að Grænlenskir flóttamenn leggi ekki undir sig landið þegar þeirra land byrjar að bráðna. Þeir hefðu betur sest að annarstaðar þessir snjóhúsa-borðandi frumbyggjar.
Ég veit Ljómar upp Kjósum Ástþór Mangnússon sem forseta og hann stofnar her. Og þegar það verður ólíft á öllum öðrum stöðum í heiminum vegna hita þá ráðumst við á þau lönd og tökum yfir heiminn.
múhahahahahhahahaha Starir þegjandi út í loftið
Af hverju þarf alltaf að fara í stríð og hernað? Við erum hérna að ræða um endalok heimsins og þið viljið fara að skjóta og drepa.
Ef þarf að gera slíkt er eins gott að gera það strax því eftir heimsendi er það of seint.
Af hverju þarf alltaf að fara í stríð og hernað? Við erum hérna að ræða um endalok heimsins og þið viljið fara að skjóta og drepa.
Skjóta og drepa er gott. Heimsendir er góður. Ég sé hvergi vandamál hér.
Það er ekki eins og þetta muni hafa áhrif á mig.
Blástakkur, á hvaða plánetu býrð þú á?
Fyndið að þú skulir spyrja! Ég er nefnilega einmitt staddur á sporbaug í kringum Jörðina þannig að ég get ekki sagt að ég sé staddur á neinni plánetu.