Ég á líka svona! Er þetta ekki annars árgerð 2677 júdó-jitsu kóbaltknúin þungavélbyssa? Baggalútíon edition?
Ég hef séð svona. Þeir nota þetta mennirnir í appelsínugulu göllunum,þegar þeir þurfa að bora gat á malbik.
Þetta er alveg eins og byssan sem ég nota á rjúpnaveiðarhugsar umhverfisráðherra allt hið versta vegna veiðibannsins og smyr vopnið
Mennirnir í göllunum hafa ekki aðgang að Baggalútíon edition byssum, þeir nota venjulegu gerðina.
Þetta er alveg eins og byssan sem ég nota á rjúpnaveiðarhugsar umhverfisráðherra allt hið versta vegna veiðibannsins og smyr vopnið
Ég stóð í þeirri meiningu að rjúpnaveiðar væru leyfðar í Baggalútíu?
Já, þetta er létt og handhæg byssa. Ég kýs þó fremur að nota þungavopn.
Gallin við að nota svona alvöruvopn er að það fæst bara rjúpnakássa úr veiðiferðinni.En ég kann margar góðar uppskriftir af rjúpnakássu svo það kemur ekki að sök
Fári Egilsson vill meina: Ég stóð í þeirri meiningu að rjúpnaveiðar væru leyfðar í Baggalútíu?.
Rjúpnaveiðar eru leyfðar í Baggalútíu. En hér fá rjúpurnar hins vegar að skjóta á móti. Og þar sem felstir þeir sem hér eru innandyra eru verri skyttur en rjúpurnar, eru lambalæri og hangiket á jólaborðum flestra Bagglýtinga.
Ég er vanur því að drepa rjúpurnar með höndunum, mun hljóðlátara. Nema nátturulega að maður noti bardaga-öskur.
En þetta er líka sniðugt til að losna við mávahrúguna og fuglaskitinn sem fylgir þeim!¨
Þetta er einmitt fín dótabyssa í veskið eða brjóstvasann!
Ég held við gerum okkur öll grein fyrir hvernig ég drep rjúpur.