VINSAMLEGAST LESIÐ REGLUR VEL FYRIR ÞÁTTTÖKU. Takk fyrir.
Nú á Semmning við svefnleysisvanda að stríða (sjá klukku) og þá er ekki von á góðu. Tekur karl sig þá til og ákveður að skella hér inn nýjum leik þar sem hægjast er farið á Robertunum,ekki síst hjá honum sjálfum.
ATHUGIÐ VEL!
Lögð er áhersla á að höfða til samvisku og alkunnrar ábyrgðartilfinningar vefnotenda og þeir beðnir um að sýna sér og öðrum þá virðingu að leita til sinna eigin heilabúa en ekki til vefsíðna í leit sinni að:
TÓNLISTARMÖNNUM/HLJÓMSVEITUM SEM GEFIÐ HAFA ÚT HLJÓMVERK SÍN FYRIR ALMENNAN MARKAÐ UNDIR ÞVÍ NAFNI SEM HÉR ER NEFNT OG.............
Twentieth century fox stefið í fullri lengd
BYRJAR Á BÓKSTAFNUM A!!!!!!
Lófaklapp dynur um salinn
Sem stofnandi og ábyrgðarmaður leiksins vígi ég hann hér með með hinni ástsælu pöbbasveit:
AC/DC
Góða skemmtun og gangi ykkur vel!
P.s. Munið: „Samviskan er lykillinn að sjálfshamingju“
(Yao Ming, útkastari, "Out-thrower Monthly" 4.tbl. 14.árg.)
Aerosmiths
A - Brit popparar sem toppuðu líklega með skífu sinni Hi-Fi serious árið 2002
Arcadia (Ojbjakk !)
A+ sem sló í gegn árið 1996 þá aðeins 14 ára að aldri með ansi harðri rapp plötu. Hefur ekki staðið undir væntingum eftir það.
AFSÖKUNARBEIÐNI (athugið,hér er ekki um hljómsveitarnafn að ræða)
Mér láðist að nefna að hér í þessum leik fellur orðið "The" út. Sem sagt ef til væri hljómsveit sem héti "The Almightys" væri hún lögleg.
og Artch (Norsk þungmálma hljómsveit með Eirík Hauksson,hin skelegga, í broddi fylkingar)
[The] Anti nowhere league (bresk pönkhljómsveit frá níunda áratugnum, þekktasta lagið er I hate people, they hate my)