Á dögunum kom Glúmur með eftirfarandi snilldarhugmynd:
Auk þess þá mæli ég með að láta gjaldmiðilinn eigi fylgja tugakerfinu heldur tvíveldakerfinu, 1024 Böggur væru þannig ein MegaBagga.
Pínur yrðu skilgreindar sem 'aurar' Böggunnar og í hverri Böggu væru 8 Pínur.
8 Pínur = 1 Bagga
1024 Böggur = 1 MegaBagga
GígaBagga = 1024 MegaBöggur = 1.048.576 Böggur = 8.388.608 Pínur
Lútan yrði aftur á móti mun framandlegri gjaldmiðill, hún væri fyrsti lógaritmíski gjaldmiðill í veröldinni og væri skilgreind sem Lútur = Böggur^0,5
þannig væru:
1 Bagga = 1 Lúta
25 Böggur = 5 Lútur
100 Böggur = 10 Lútur
400 Böggur = 20 Lútur
900 Böggur = 30 Lútur
1 MegaBagga = 32 Lútur
1 GígaBagga = 1 MegaLúta
Þetta þýðir að eftirfarandi ákvörðun um mynt/seðla er fallin um sjálfa sig:
1 bögga = Nykur
50 böggur = Jarfi
100 böggur = Hakuchi
1000 = Blástakkur
5000 = Sverfill Bergmann
500.000 = Vladimir Fuckov
1.000.000 = Mikill Hákon
Leggjum vér því til að farið verði út í allsherjargjaldmiðilsskipti. Vér viðurkennum að vísu fúslega að þetta er á verksviði Seðlabankaráðherra en það hlýtur að vera sama hvaðan gott kemur. Varðandi nýja seðla og mynt þá er ekkert sem segir að upphæð þeirra þurfi endilega að vera heil hundruð/þúsund en hafa má kíló/mega/gíga o.þ.h. inn á milli.
Það mætti t.d. hugsa sér eftirfarandi upphæðir á sðelum/mynt:
0,98
47
256
1 Kílóbagga
5003
493.121
1.084.985
1 Gígabagga
og síðan að hafa sér seðla fyrir lúturnar hans Glúms og setja svo reglugerðir um hvort megi nota hvar.
1 bögga = Nykur
50 böggur = Jarfi
100 böggur = Hakuchi
1000 = Blástakkur
5000 = Sverfill Bergmann
500.000 = Vladimir Fuckov
1.000.000 = Mikill Hákon
Segir upphæðin eitthvað um mennina sjálfa?
Er ekki bara verið að ræða um andlitsmyndir á seðlum og klinki
Er ekki bara verið að ræða um andlitsmyndir á seðlum og klinki
Jú, rétt er það.
brosir, stíft, þröngvað og óþægilega. Brosir samt!
Ég býð smettið á mér fram til að nota á einhvern bleðil...
Vladimir.
Ég veit að þetta er óviðeigandi og mjög óþægileg spurning en við hvern ertu alltaf að tala í símanum?
Það er ríkisleyndarmál.
Ég veit nú ekki betur en Baggalútur eigi sér fullgilda mynt:
Hvernig í ósköpunum gátum við gleymt því?
Frábært, þá getum vér haft þrjá gjaldmiðla.
Hvernig í ósköpunum gátum við gleymt því?
Ég var nú bara síðast í gær að minna þig á að þú skuldar mér enn 3000 Baggalúts evrur.
Ég veit nú ekki betur en Baggalútur eigi sér fullgilda mynt:
nau... hvur skrattakollurinn!?
Hvernig í ósköpunum gátum við gleymt því?
Ég var nú bara síðast í gær að minna þig á að þú skuldar mér enn 3000 Baggalúts evrur.
Í alvöru talað ég kannast sko ekki við þetta. Ef eitthvað er þá skuldar þú mér!
Var búið að ákveða gegni gjaldmiðila vorra miðað við t.d. dollara ?
Nefnd sem ég setti á laggirnar komst að þeirri niðurstöðu að fés mitt skyldi sett á einn seðilinn, ellegar færi ég...nei, nefndin meina ég að gráta.
Hugmyndin sem fallist var á að andlit mitt yrði sett á seðla sem hefðu gildið Googleplex Baggalúts Evrur (eða bara sá gjaldmiðill sem fallist er á). Ekki er ég stærðfræði skríbent en Googleplex mun víst vera stærsta tala sem nokkri mannkind hefur dottið í hug að skilgreina. Það að prenta út þessa tölu á venjulegan prentara tæki að ég held einhvern óhóflegan fjölda alda og ég veit ekki hvað.
Hvað segið þið um það? (Þið hafið að sjálfsögðu ekkert að segja, þetta hefur verið ákveðið, ég vildi bara vita ykkar skoðun, svo ég geti hlegið að henni..)
Þetta yrði að vera nokkuð stór seðill, til að rúma allar þessar tölur. Annars finnst mér eins og keisarin ætti að vera á stærsta seðlinum.
Keisarann á seðilinn minn! Síðan vil ég vera á seðli.