Æ Plebbin það er ekkert gaman að slást, getum við ekki heldur rifist um eitthvað?
Mér leiðist rifrildi. Starir þegjandi út í loftið
Svo þú bara alltaf í boltanum?
nei, það eru eigi allir eins og þú Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Eikarborðið virðist skella á Blástakki með gríðarlegu afli. En þegar það dettur niður er Blástakkur horfinn og það eina sem heyrist er þungur andardrátturinn. Skyndilega flýgur sófasettið aftur til baka þaðan sem það hafði farið í áttina að baki Hakuchis
Þetta var allt Hakuchi að kenna!
Hvaða vitleysa. Blástakkur byrjaði.
Munið að ég er dómsmálaráðherra. Ég er því alltaf saklaus og ekkert er mér að kenna.
Smá misskilningur hérna... Auðvitað er þetta mér að kenna. Ég er Fólskumálaráðherra!
MOHAHAHA!
Hvað ætliði að gera í því sosum!
Segi það. Ekki sofna á verðinum í illindum. Mjúkur fólskumálaráðherra er slappur fólskumálaráðerra.
Hvað með það þó að eitt eldhús og ein stofa séu ónýtar. Þá verða Hakuchi og Blástakkur bara að deila saman stofu. Eða að nota gestastofuna.
Eða taka undir nokkur herbergi lægra settra manna, brjóta veggina á milli og gera úr þeim svítur sem hæfa háttsettum ráðherrum í ráðstjórninni.
Eygir herbergi Hilmars
Eygir herbergi Hilmars
Horfir líka í áttina að kústaskápnum, hvað er Hakuchi núna að bralla því gjóir hann augunum svona græðgislega á kústaská.... herbergið hans Hilmars?
Svona hvaða uppsteit eru þetta Hilmar minn. Þú getur gist í þessum líka fína kistli hérna.
Bendir á kistilinn sem geymir saltaða svínakjötið
Blástakkur hlammar sér niður í eina óbrotna stólinn sem brotnar í þúsund tannstöngla samstundis
Jahérna... Tyrknesk gæði!