Nú erum við ekki að tala um kúng fú bardagann milli mín og Blástakks (með örlítilli þáttöku plebbans)?
Það væri nú reyndar ekki í fyrsta sinn sem við erum að tala um sitt hvorn hlutinn.
OK, þú getur svo sem vel hafa verið aðal töffarinn í þessum slag. Ég svindlaði og las ekki öll innleggin. skammast sín ekki vitund
Jú jú karlinn, við tölum stundum um sama hlutinn, en sjónarhornið er ólíkt.
Það vantar nú eitthvað svakalegt ef þú hefur ekki gaman af vel kóreógröfuðum gannislag. Hvernig væri að taka af sér kynjagleraugun aðeins og njóta sín svolítið í smá hasar, sem því miður virðist þjást af þátttökuskorti kvenna?
Ég vil fá fleiri stelpur í hasarmyndirnar. Það er miklu skemmtilegra að horfa á alvöru hasarkvendi heldur en þessa stereótýpísku "macho" karla.
Ef þú telur þig hafa það sem til þarf... já þá er þetta áskorun!
Þú gætir sett þig í læri hjá stjörnum eins og:
Michelle Yeoh
Yukari Oshima
Cynthia Rothrock
Moon Lee
Michelle Kahn
Mishiko Nichiwaki
Taktu eftir því að mikið af þessum konum eru af asískum uppruna enda er það heimaland hasarkvendanna. Þarna vantar að vísu uppáhaldið mitt hana Sigourney Weaver sem þó er amerísk.
Vissi ég ekki, þið viljið ekki slást við konu, ykkur lætur betur að tala um konur en slást við þær............eða hvað?
Uhhh! Já, ætli það ekki bara.
Slær feministan í rot með pönnu
Ekki tjá þig, það fer þér ekki.
Svona nú plebbin minn, við skulum stíga hér til hliðar meðan Femínisti og Blástakkur heyja heiftúðugan gannislag.
Tekur plebban undir höndina og gengur upp að vegg
Ég nenni ekki í gannislag ég er upptekinn við að fara að gera eitthvað annað. Þ.e. ég þarf að fara og æfa fólskumálakórinn. Ég á nefnilega ekki að vera hér og þess vegna þýðir ekkert að benda á mig.
Þú heldur það, með mitt höfuð rotast ég ekki. Tekur pönnuna af Plebbin og rassskellir hann/hana duglega.