Datt allt í einu hug hugleiðing sem hinn vel þekkti heimspekingur Steve Davis opinberaði fyrir okkur íslendingum um árið og hefur vafist fyrir mér. Ef einhverjir eiga svarið við þessu,eruð það þið,kæru félagar. Vonast ég til að sjá sem flestar tilgátur.
Hugleiðingin er þessi: "Hvernig kemst maðurinn sem ekur snjóruðningstækinu í vinnuna"?
Persónulega hélt ég nú að hann væri með fjarstýringu.....
Hann hlustaði á spána, fór heim á snjóruðningstækinu og komst þaðan allra sinna ferða meðan aðrir sátu fastir.
já ég þekki einn snjóruðningsmann...... hann býr í snjóruðningstæki í breiðholtinu.....
Þetta er rangt. Hann býr bara heima hjá sér. Hins vegar fer hann heim á snjóruðningstækinu og kemst þannig ávallt til vinnu.
já er það, það gæti verið að þetta sé rétt hjá þér, en síðast þegar ég hitti hann þá bjó hann í snjóruðningstækinu
Ekki er hann með árans hefillinn í innkeyrslunni!?!?!?! Þá er nú skárra að komast ekki til vinnu og láta mannfólkið frjósa í hel í heild sinni Beygir sig niður og nær aftur í andlitið af gólfinu
nei hann geymir hann á plani sem er í 2 mínútna fjarlægð frá húsinu hans
Og hvernig kemst hann þangað? Við erum að tala um magn,hérna engan úðaandsk...
Þarna er það komið!. Það hlaut að vera fullkomlega eðlileg lausn á þessu. Slær sér á lær og hnykkir höfðinu til hliðar í virðingarskyni við snilligáfu Áramóta
Reynir að fela brosið en getur ekki leynt því að hann er nú frekar montinn
Ha HA HA! Faðmar áramót að sér og réttir honum verðlaunafé, 200 kr
tekur í hendina á semming og þakkar honum fyrir, labbar svo upp á svið og byrjar að halda ræðu