Jæja kæru Baggalútar.
Ég legg til að allir hérna fari í átak og í staðinn fyrir að nota ensku gæsalappirnar förum við að nota þær íslensku.
í staðinn fyrir Shift+2 sem verður þá ", þá gerum við einfaldlegar bara alt+0132 „ . Þetta eru mjög létta tölur að mun 0132 0132 0132. Ég verð bara að viðurkenna það að ég er jafn fljótur að gera alt+0132 einsog shift+2.
Síðan er það til þess að loka, þá geriri maður alt+0147 “. Þetta eru ekki kannski léttar tölur að muna en takið eftir þessu. Þú klikkar bara á núll-ið og síðan þrjá takka fyrir ofan það.
Þetta er kannski erfiðara fyrir þá sem ekki hafa svona num-pad tölur t.d. eins og á fartölvum en í gvuðanna bænum við skulum ekki vera nota þessar bölvuðu ensku gæsalappir.
Lengi lifi íslenskan
Líst vel á þetta lofsverða framtak og tek undir af gervöllu hjarta mínu. Hverjar voru tölurnar aftur........? Starir þegjandi út í loftið
Ég neita að fylgja þessum reglum!
Þú gerir það nú bara víst
Slær í plastdolluna á höfði Blástakks
Ég vil nú bara taka það fram að þetta er hert títaníumblandað kóbalt!
Segir mér það já. Brestur í óstöðvandi HLÁTUR
Ég gæti skallað múrvegg og hann myndi brotna niður í frumeindir sínar.
Nú er það já, hann er svo sterkur.
Ekki fara þér að voða.
Ég er með hann fóðraðan að innan með kasmírull og kóbaltdópuðu nælon. Síðan er ég náttúrulega lengur með toppstykkið á hauskúpunni áfast til þess að vírarnir eigi greiðari leið. Í staðinn er ég með kóbaltblandaða títaníum skel til einangrunar.
þetta er svona háþróuð fata.
Starir þegjandi út í loftið
Þú ættir að vita hvernig sjónvarpsloftnetið er dulbúið.
nei reyndar ekki klórar sér í höfðinu
Það er leyndarmál. En ég vil samt geta þess að mesta snilldin er fólgin í því hvernig ég fer á klósettið.
Nei ég þarf aldrei að skeina mig. Pípulagnirnar eru sjálfhreinsandi.
...
fallast hendur
Ertu svona viðkvæmur greyið mitt?
Jæja kæru Baggalútar.
Ég legg til að allir hérna fari í átak og í staðinn fyrir að nota ensku gæsalappirnar förum við að nota þær íslensku. Lengi lifi íslenskan
Heyr, heyr! Tek undir og mæli eindregið og heilshugar með þessu átaki. Gott að vita af íslenskuáhuga plebbinar.......... Eða plebbins..... Í Menntamálaráðuneytinu ertu skráð/ur kvenkyns, en þar var miðað við stafsetningu nafnsins og fyrri skrif þín (einnig útlit). Ef tekið er síðan mið af nýlegum skrifum þínum ertu karlkyns! Ertu ef til vill nýkomin/n úr aðgerð? Hvers kyns viltu vera skráð/ur hjá ráðuneytinu?
Menntamálaráðherrann