Þvílík gleði! Þvílík hamingja!
Að sjá þennan gauksperrta skagagöndul rífa sig og sína fölbláklæddu spóaleggi,sem aldrei hafa verið við neitt kenndir annað en að vera daprasta knattspyrnufélag mannkynssögunnar, uppúr gjörtapaðri stórskotahríð Tottaranna og snúa frámunalega vonlausri stöðu í óvæntasta viðsnúningssigur sem um getur í íþróttasögunni síðan Fríða Hjaltested (kvenmaður) náði að tryggja sér þriðja sætið í spurningakeppni Reykholtsskóla,á fyrriparti síðustu aldar. Og það upp á eigin spýtur.
Ég geri það hér með að tillögu minni að hinn gauksperrti skagagöndull, Árni Gautur, verði sæmdur embætti forseta Íslands. Miðað við þann óaldalýð sem á undanförnum árum hefur hlotið fálkaorðuna,væri eingöngu sá virðingarvottur við þetta afrek, ekkert minna en hneisa.
Mælii eindregið með að Semmning verði kæfður í uppstúfi og kaffærður í pappírsvinnu innan Nefndamálaráðuneytis. Svei þeim sem minnist á þessa verstu íþrótt af öllum vondum, svei...
Það er nokkuð til í þessu. Þær eru fáar verri íþróttirnar en að gegna forsetaembættinu. Ég viðurkenni á mig sökina og ræði þetta ekki meir. EN ég kýs Árna Gaut ef hann býður sig fram. Hann á minn stuðning allan. Fagna allri pappírsvinnu...... og hver getur ímyndað sér ljúfari dauðdaga en að vera kæfður í uppstúfi!! Ég tek eindregið undir þessar tillögurStekkur hæð sína
Kjósum Árna Gaut. Forsetinn þarf að geta varist föstum og lúmskum skotum Davíðs.
Drengir, ég er keisari bara svo að þið vitið það hverfur aftur inn í holuna sem hann spratt upp úr
Að sjálfsögðu,yðar hátign. Svo lengi sem þér skiptið yður ekki af virðisaukaskatti á flugdrekamarkaði. Þar skal ég taka til hendinni.Ég sé um það allt.
Leikmaður með Man. City er einfaldlega ekki þjóðhetja, hvernig svo sem á málið er litið.
Nei, í besta falli er þetta drykkfellt samansafn íþróttameiðsla.
Mér finnst það skjóta heldur skökku við að maðurinn sé þjóðhetja eftir að hafa fengið á sig 3 mörk í einum leik nú í vikunni, en var skúrkur þegar hann fékk á sig 3 mörk gegn Þjóðverjum í fyrra! Er það ef til vill vegna þess að Tottenham (held það heiti það) er miklu betra lið en þýska landsliðið?
Veit sá sem ekki spyr.
Nei,það er hins vegar vegna þess að íslenska landsliðið er.....íslenska landsliðið. Starir þegjandi út í loftið Afrek Árna Gauts, hins verðandi forseta, í vikunni var svipað og ef íslenska landsliðið hefði unnið Þjóðverja 3-5 í umræddum leik.
Það er alþekkt að íslendingar séu gerðir að þjóðhetjum fyrir aðeins eitt afrek eftir að fyrri ferill þeirra hafði verið ein löng röð háðuglegra mistaka og feilspora. Hver man ekki eftir Halldóri Laxness,heitnum?
Þetta eru allt saman óafreksmenn!
Aumingjar bara!
Nei,það er hins vegar vegna þess að íslenska landsliðið er.....íslenska landsliðið. Starir þegjandi út í loftið Afrek Árna Gauts, hins verðandi forseta, í vikunni var svipað og ef íslenska landsliðið hefði unnið Þjóðverja 3-5 í umræddum leik.
Þetta eru, vægt til orða tekið, einkennileg rök, en Gautur er fallegt nafn.
Það sem mestu skiptir er vissulega að forsetinn heiti fallegu nafni. Synd að við höfum aldrei átt forseta sem heitir til dæmis Semmning... ÞAÐ væri stemmning!!!!! Ljómar upp
Þó er ég þess fullviss að Árni Gautur muni valda þessu embætti með sóma og jafnvel sjá sóma sinn í að borga sína eigin leigu sjálfur.
Ég leyfi ekki neitt slíkt fyrr en maðurinn kemur hingað í eigin persónu og kynnir sig fyrir okkur og sannar að hann sé ekki hálfviti.
Ég horfi ekki mikið á leiki. Ekki nema svona leiki þar sem ég fæ að pynta fólk til dauða ef það stendur sig ekki vel.
mmmm..þú værir fínn landsliðsþjalfari Starir þegjandi út í loftið