Þvílík gleði! Þvílík hamingja!
Að sjá þennan gauksperrta skagagöndul rífa sig og sína fölbláklæddu spóaleggi,sem aldrei hafa verið við neitt kenndir annað en að vera daprasta knattspyrnufélag mannkynssögunnar, uppúr gjörtapaðri stórskotahríð Tottaranna og snúa frámunalega vonlausri stöðu í óvæntasta viðsnúningssigur sem um getur í íþróttasögunni síðan Fríða Hjaltested (kvenmaður) náði að tryggja sér þriðja sætið í spurningakeppni Reykholtsskóla,á fyrriparti síðustu aldar. Og það upp á eigin spýtur.
Ég geri það hér með að tillögu minni að hinn gauksperrti skagagöndull, Árni Gautur, verði sæmdur embætti forseta Íslands. Miðað við þann óaldalýð sem á undanförnum árum hefur hlotið fálkaorðuna,væri eingöngu sá virðingarvottur við þetta afrek, ekkert minna en hneisa.
Hér er umræðuefnið ekki íþróttir,heldur hetjuskapur og ennfremur var ætlun mín að benda á hvað það væri sem einkenna ætti þann einstakling sem gegnir virðulegasta embætti þjóðarinnar,sjálfu forsetaembættinu.
Hið langa nafn höfundar næsta innleggs á undan þessu truflaði að áliti voru uppsetningu forsíðu GESTAPÓ og er þessu innleggi ætlað að bæta þar úr enda nafn vort öllu styttra.
Breyting: Vér sjáum að hæstvirtur utanríkisráðherra varð fyrri til að bæta úr þessu vandamáli en vér áttum við hið langa nafn Semmning Semmningsen.
Forseti þjóðarinnar á að sýna kjark,dugnað,þrautseigju og dygðir á við það hugrekki sem Skagagöndullinn sýndi í hálfleiksstöðu orrustunnar við Tottarana,sem auðveldlega má yfirfæra á þá stöðu sem Íslenska þjóðin er í nú gagnvart öðrum þjóðum í flestum málaflokkum (3-0 undir, færri og ekki taldir eiga nokkurn einasta möguleika til sómasamlegrar útkomu).Hann á ekki að dúsa bara í frírri íbúð á besta stað, liggjandi á bæn um að enginn vekji máls á hvers lags gunga og dugleysingi hann er í raun og veru. Og ,jú, ekki væri verra ef hann væri góður í marki. Því verður ekki neitað.
Að lokum leggjum vér til að forsetaembættið verði lagt niður.
Fylgist með og þið munið komast að því að það er löngu búið að leggja það niður.
En hann er lélegur markmaður.
Það er rétt Herr Austmann, en við gætum þjálfað hann soldið fram að kosningum.
Myglar er gamall hundur og það er ekki hægt að kenna gömlum hundum að gera nokkurn skapaðan hlut.
Hvernig er hægt að tala um mann sem þjóðhetju sem ekki komst einu sinni á lokakeppni EM? Þurfti hann ekki að hirða tuðruna þrisvar úr markinu í leiknum Þýskaland-Ísland í haust? Í leik sem hefði komið okkur á EM ef við hefðum unnið? Ég man ekki betur. Nei slíka menn hlýtur þjóðin að krefjast refsingar yfir með því að mæta niður á Austurvöll og kasta snjóboltum í þinghúsið.