Góðan daginn.
(Ég er bara svo glaður af því það er svo sjaldgæft að ég sé kominn á fætur á svona ókristilegum tíma.)
Góðan daginn Myndi annars heldur vilja vera sofandi núna
Góðan daginn...geisp...öll helgin framundan...eigum við ekki að halda upp á það með lýsisblönduðu brennivíni....Skál
Skál !
Velkominn á fætur! Opnar ekki ÁTVR kl. 11.00? Nuddar stýrurnar úr augunum
Góðan daginn.
Ég fór í ríkið klukkan 8:47 í morgunn. Það var reyndar smá vesen að komast inn, en vel þess virði.
Rop!
Skabbi þó, strax búinn með allt ákavítið? Ég skal er nú svosem ekkert betri með minn vodkablandaða pilsner Starir mæðulega í glasbotninn
Hér er klassískur kokteill
1 brúsi brennsluspritt
2 L. Nýmjólk (fína fólkið getur notað kókómjólk)
1 meðalstórt seytt rúgbrauð
Mjólk og brennsluspritti er blandað saman svo mjólkina ysti. Það er ágætt að hrista þetta soldið.
Svo eru guðaveigarnar síaðar í gegnum rúgbrauðið. Ef maður er illa á þörfinni þá má sleppa þvi að sía.
Þetta er borið fram vel kælt í martiniglasi, huggulegt er að setja smá sítrónu börk með.
Þegar allt er búsið er búið má reyna að innbyrða rúgbrauðið í von um að það hjálpi eitthvað til.
Ég er með uppskrift af krækiberjavíni sem öllum ætti að líka
10 L vodki
1 stk krækiber
Hrærist vel
Drekkist
Verði ykkur að góðu
Hver þarf áfengi til þess að skemmta sér?
Vil einhver segja mér hvað bindindismaður er að gera hér inná Baggalút ?? Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hver þarf áfengi til þess að skemmta sér?
jáá... ker þarf ettta helvítis afengi...það er óþarfa drasl....!!!