Ég held að ég þekki ekki Skabba en varðandi kóbalt atómið þá er líka óþekkt exótísk eind sem er gerð úr antikvörkum sem klónar sjálfa sig er eitt atóm kemst í tengsl við annað. Ég hef tekið mér það bessaleyfi að kalla þetta bláeind.
Auðvitað! Bláeindin!! Hvernig gat ég verið svona vitlaus! Þetta er svarið við gátunni!! hleypur að bókaskápnum og togar í sjáfsævisögu jónsa í svörtum fötum, opnar leynidyrnar og hraðar sér niður í tilraunastofuna. Tekur nokkur glös og blandar nokkrar blöndur, dansar fugladansinn og grítir flöskunum í mynd af R-Kelly. Uppúr sullinu rís annar Geir Ólafsson Neibb. Mistókst aftur! Hverju er ég að gleyma?
Það hlaut að vera að Geir Ólafsson væri misheppnuð tilraun brjálaðs uppfinningamanns. Þarna er skýringin komin. Takk.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ahh... já ég hef ekki töluna öllum Geirunum sem ég hef búið til í gegnum tíðina. Ástæðan er sú að þú gleymir að gera ráð fyrir quantaflökti bláeindanna þegar þær eru konsentreraðar á viksvæðið.
ja, þú segir nokkuð! röltir hugsi að bókaskápnum og togar í sjáfsævisögu jónsa í svörtum fötum, opnar leynidyrnar og fer niður í tilraunastofuna. endurtekur fyrri tilraun með þeirri breytingu að leikskólalögin eru sungin hástöfum við framkvæmdina og myndin á veggnum er af Halldóri Laxness uppúr sullinu á gólfinu fer að rísa eihverskonar mannvera Já, þetta er að takast! Það lifir! Það lifir!andlit fer að myndast á mannómyndinni Fari það grábölvað, þetta er HANNES HÓLMSTEINN!!! Ég hefði átt að vita betur en að fara að ráðleggingum Fólskumálaráðherra! Fussum svei!
Hohohoho!