Já og sonur hennar er ennþá að jafna sig eftir "slysið".
Mæli með að í fararbroddi innrásarhers okkar, verði skriðdrekar með stórum hátölurum sem spila í sífellu íslensk júróvisjónlög, einkum þó úr forkeppnunum. Þá mun óvinurinn leggja á flótta og veröldin er okkar. Verðum þá að muna eftir að skaffa hersveitum okkar pottþéttar eyrnarhlífar.
Væri það ekki enn tilkomumeiri sjón ef við kæmum fyrir slíkum hátölurum á Fljúgandi Sauðum Dr. Zoidbergs. Hvernig er með skeggapana fljúga þeir líka? Nú er hægt að sækja um styrk hjá Dóra til herflutninga yfir hafið ef þeir eru fótgangandi. Þó væri kannski réttast að senda þá með rútunni frá Akureyri í bæinn og Dóri tæki þá við þeim á BSÍ og svo þaðan á vígstöðvarnar.
Fljúgandi Sauðir Dr. Zoidbergs skömmu eftir innrásina í Færeyjar, þess má geta fyrir sjónskerta að þeir eru eigi á flugi á þessari mynd en það hefur reynst erfitt að ná slíkri mynd þar sem þær verða alltaf svo hreyfðar, en eins og sjá má getur fullorðinn sauður hæglega borið, tvö Stinger flugskeyti auk AIWA minisamstæðu með geislaspilara og tveimur hátölurum.
Þetta gæti virkað... eeen ég er voðalega veikur fyrir genabreyttu lundunum. Getum við ekki notað þá meira?
Þetta gæti virkað... eeen ég er voðalega veikur fyrir genabreyttu lundunum. Getum við ekki notað þá meira?
Þeir eru bara svo mikil rassgöt að maður á erfitt með að senda þá svona í fremstu víglínu. En þeir eru fólskir andskotar og stórvarasamir og henta vel til hernaðaraðgerða.
Það er kannski erfitt að setja á þá hátalara, athugandi væri þó að spyrða saman tvo fugla sem í sameiningu héldu þá á hátölurum og síðan flygi einn fyrir aftan með geislaspilarann. Þetta er þó aðeins hugmynd.
þeir henta langbest í skæruhernað, sem við höfum enga þörf fyrir núna.
en hljóðin sem þeir gefa frá sér... úff.Þetta gæti hrætt burt heilu herdeildirnar!
Þið sigrið... rollurnar eru það þá.
Þið sigrið... rollurnar eru það þá.
Nú erum við með Landher = skeggapana, Flugher = Sauðir Dr. Zoidbergs og Flugher/skæruhernað = genabreyttir Lundar, hvað með í sjóher?
Við getum stökkbreytt nokkrum mávum eða notast við gömlu góðu ýsuna.
Varðandi upphaflega titilinn á þræði þessum þá sýnist oss því sem þarf að banna hafa fjölgað.
Varðandi upphaflega titilinn á þræði þessum þá sýnist oss því sem þarf að banna hafa fjölgað.
Alltaf skilið nafn þráðarinns á þann veg að hér ætti að tala um málefni sem eigi mættu fréttast útá við. Roðnar og flissar eins og smástelpa
Blástakkur, hvernig lýst þér á að rækta fiska sem kunna á dósaopnara og segja svo Bretum að þeir megi veiða eins og að þeir vilja innan landhelgi okkar. Óþverralýðurinn myndi þyrpast hingað til að veiða, en bráðgáfuðu og sérþjálfuðu fiskarnir myndu þá gata alla bátana! Þannig gætu við náð fram hefndum fyrir þorskastríðið!
Ég legg til að takmarka þessa þjálfun við þorska til að stríð þetta geti kallast með réttu; Seinna þorskastríðið.
En við unnum þorskastríðið... hvað höfum við að hefna fyrir? Ekki það að ég sé þannig séð mótfallinn ísmeygilegum áætlunum þínum.
Við misstum marga góða þorska í þessu stríði Blástakkur!
Við misstum marga góða þorska í þessu stríði Blástakkur!
Synd að þú varst ekki fæddur þá Hilmar minn. Dæsir mæðulega og lagar axlaböndin á Hilmari sem höfðu losnað öðrumegin
Hilmar! Ég veit að þér finnst kúl að vera með laus axlabönd öðru megin en það er bara ekki að virka. Sem skattstjóri verðuru að geta hnyklað vöðvana á sem ógnvænlegastan hátt framan í fórnarlömbin svo þau lamist af ótta og þetta mun ekki hjálpa.
Nújá, það er kannski rétt hjá þér. Þú hefur meira tískuvit en ég. Dáist að búning Blástakks og lagar axlaböndin