Upp er kominn nýr og alvarlegur vandi hér á spjallsvæðinu. Það er ekki nóg með að það sé erfitt að skrá sig inn, heldur virðist nú nær ógjörlegt að skrá sig út. Víst er það gott fyrir egóið að finna að nærveru manns sé óskað í tíma og ótíma, en gleymum ekki lögmálinu um framboð og eftirspurn. Ég taldi mig hafa atfengst í bak og fyrir snemma dags í gær, en birtist svo sem innipúki - án þess að skrá mig inn - í dag. Hvernig má það vera? Nýt ég sérmeðferðar? Kannast fleiri við þetta vandamál? Hvað er til ráða?
Ég kannast við þetta. Þó ekki hefur verið vandamál að skrá mig inn. En er það svo slæmt að þurfa ekki að skrá sig inn í tíma og ótíma, þetta sparar innsláttinn og það að þurfa að muna aðgangsorð.
Ég kannast við þetta. Þó ekki hefur verið vandamál að skrá mig inn. En er það svo slæmt að þurfa ekki að skrá sig inn í tíma og ótíma, þetta sparar innsláttinn og það að þurfa að muna aðgangsorð.
Ég óttast mest um orðspor mitt. Nú gæti fólk haldið að ég ætti mér ekkert líf utan Baggalúts, þjáðist af andvökum og/eða athyglissýki. Hins vegar mætti e.t.v. nota inniveruna sem fjarvistarsönnun ef á þarf að halda Starir þegjandi út í loftið[Mikið er annars smekklegt að sjá okkur öll í svona grænum sjetteringum - vonandi heldur bleika og gula slektið sig fjarri.]
[Mikið er annars smekklegt að sjá okkur öll í svona grænum sjetteringum - vonandi heldur bleika og gula slektið sig fjarri.]
Þið eruð bara græn af öfund yfir að vera ekki fagurgul.
Hins vegar mætti e.t.v. nota inniveruna sem fjarvistarsönnun ef á þarf að halda Starir þegjandi út í loftið
Nú ertu að tala. Best að vera einmitt skráð hér um leið og þú heldur njósnir um allt ríkið og liggur á óvinum Baggalútíu.
Sbr. KS 27

Ligg á óvinum Baggalútíu, segirðu...þetta má skilja á marga vegu!
Aðferðir þínar koma ekki neinum við. Við treystum þér fullkomlega í starfi þínu.
Upp er kominn nýr og alvarlegur vandi hér á spjallsvæðinu. Það er ekki nóg með að það sé erfitt að skrá sig inn, heldur virðist nú nær ógjörlegt að skrá sig út. Víst er það gott fyrir egóið að finna að nærveru manns sé óskað í tíma og ótíma, en gleymum ekki lögmálinu um framboð og eftirspurn. Ég taldi mig hafa atfengst í bak og fyrir snemma dags í gær, en birtist svo sem innipúki - án þess að skrá mig inn - í dag. Hvernig má það vera? Nýt ég sérmeðferðar? Kannast fleiri við þetta vandamál? Hvað er til ráða?
Ég sá þig ekki sem Innipúka í gærkveldi eða í morgun, þannig að þú hlýtur bara að hafa skráðst sjálfkrafa inn þegar þú fórst inn áðan...
Þar til almennileg lausn finnst á þessum blessuðu innskráningum kom ég því þannig fyrir að gestir væru skráðir sjálfkrafa hér inn þegar þeir snúa aftur á Baggalút.
Sjálfum þykir mér þetta hið besta og mesta hagræði - og legg ég til að allir fagni þessu með ferföldu húrraöskri - og láti alfarið vera að kvarta og kveina.
Þeir sem endilega vilja afskrá sig þurfa bara að smella á "Aftengjast" - ekki er verra að gera það tvisvar. Lítur snöggt undan og virðir skömmustulegur fyrir sér nálægan vegg
Bara að passa að aftengja sig ef maður er í tölvu sem aðrir komast í, eins og fíflið hann Skabbi gleymdi glottir og lítur flóttalega til dyranna Skabbi er að koma... Skál
Helvítið hann Doddi...alltaf að skrifa undir mínu nafni...skál fyrir því Doddi minn
Ég er farinn að hafa áhyggjur af þér Skabbi minn. Ertu farinn að minnka við þig drykkjuna? Yfirleitt ertu áfengisdauður á þessum tíma sólarhringsins.
Ég er farinn að hafa áhyggjur af þér Skabbi minn. Ertu farinn að minnka við þig drykkjuna? Yfirleitt ertu áfengisdauður á þessum tíma sólarhringsins.
Nei ekki hefur hún minnkað, en afturámóti hef ég tekið upp nýja siði til að hjálpa mér við drykkjuna. Ég fæ mér bara slurk af þorskalýsi og þá helst ég góður lengst fram eftir kvöldi.