Með þitt traustvekjandi útlit og uppáskrifaðann samning frá sjálfum Andskotanum getur þetta klikkað.
Það er gott að vita að þetta geti klikkað!
Við verðum að senda leiðangra til þess að leita að Hvergilandi
Ef mig minnir rétt þá er Hvergiland partur af ríkjasambandi Norður og Niðurlanda.
Ég frétti einhversstaðar að það væri rétt norðan við Garðabæ
Já Garðabær er einmitt rétt hjá Oz sem er við vestan við Hvergiland og austan við mána.
einmitt það sem ég hafði heyrt
Já Garðabær er einmitt rétt hjá Oz sem er við vestan við Hvergiland og austan við mána.
OZ, já þú segir nokkuð er það komið á listann? Mig hefur alltaf fundist "tinkarlinn" vera grunsamlegur náungi. Við gereyðum OZ !
einmitt það sem ég hafði heyrt
Hvað með Hálsaskóg er ekki óhætt að gereyða honum? Bakaradrengurinn hefur alltaf pirrað mig í heimsku sinni með piparfíaskóið.
Nykur eð Hakuchi yrðu þá eiginlega að fara... þeir eru forsætisráðherrar.
Ég tek fram að ég er ekki forsætisráðherra. Til þess er ég of hógvær enda skemmtilegra að stjórna bak við tjöldin.
OZ, já þú segir nokkuð er það komið á listann? Mig hefur alltaf fundist "tinkarlinn" vera grunsamlegur náungi. Við gereyðum OZ !
Vér stóðum í þeirri trú að OZ hefði hætt að vera til þegar dotcom-æðinu lauk.
Ég legg til að öll lönd sem ekki hafa Íslenzku að þjóðtungu verði flokkuð sem óvinalönd.Það hlýtur þó að vera sjálfsögð sanngirni að veita væntanlegum óvinum stuttann aðlögunartíma áður en Landhelgisgæzlu verða gefin innrásarfyrirmæli.
Oz er einmitt í næsta nágrenni við svonefnda netheima.
ÓVINIR BAGGALÚTÍU
Ósigraðir
Slóvenía
Tékkland
Frakkland
Svíþjóð
Alsír
Ungverjaland
OZ
Hálsaskógur
Sigraðar
Færeyjar
Grænland
Bíða tilefnislausrar árásar
Svalbarði
Burkino faso
Hvergiland (enn ófundið reyndar)
Hvað með eyjuna Lesbos, við gætum svo gefið feminista hana, þar gæti hún kúgað innfædda að vild og við værum lausir við hana fyrir fullt og allt.
Þær eru ekki til.
Allavega ekki lengur, ekki síðan tilraunin með að erfðarbreyta lunda með frekknóttukóbalti í hernaðarskyni mistókst, eða mistókst ekki! MUHUHAHUAHHAHUAHHAHAHHHHhhhhhh
Umbreyttu lundarnir reyndust hafa mátt til sjálfsumbreytingar og hafa tekið á sig mynd vestmannaeyinga eftir að hafa étið þá. Ef þið hittið einhvern sem segist vera vestmannaeyingur þá er það raunverulega mannætukóbaltlundi.
Vatikanið held ég að gæti reynst okkur auðveldur og feitur biti mitt í hjarta evrópu. Þungur stálsóli Baggalútíu kremur þennan ítalskættaða maur og þá getum við nýtt okkur digra sjóði landsins til frekari landvinninga, jafnvel út í himingeiminn. Það mun ekki taka langan tíma að beisla þjóðir heims og múlbinda við Bagglútskan málstað, og liggur því beinast við að byrja strax að hugsa til stjarnanna.